Innlent

Nýr miðbæjarkjarni rís í Garðabæ

Nýr miðbæjarkjarni verður byggður í Garðabæ á næstu þremur til fjórum árum. Byggð verða þriggja hæða íbúðahús með risi og verslunum á jarðhæð, sem ásamt nýju Hönnunarsafni Íslands mynda hring umhverfis nýtt Garðatorg. Bílakjallari verður undir torginu. Samningur á milli Garðabæjar og Klasa hf. um uppbyggingu nýja miðbæjarins var undirritaður á Garðatorgi í hádeginu.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar segir að með hugmyndunum sé leitast við að skapa góða sátt um uppbyggingu miðbæjarins. Helstu breytingar á miðbæjarkjarna Garðabæjar verða þær að Hagkaup flytur að Hafnarfjarðarvegi þar sem einnig verður bensínstöð. Garðatorg heldur áfram sínu hlutverki sem miðbæjarkjarni með verslun og ýmis konar þjónustu, en einnig er gert ráð fyrir íbúðum við Kirkjulund. Núverandi húsnæði Hagkaups, Sparisjóðs Hafnarfjarðar og Betrunarhússins verður rifið. Í staðinn verður byggt þriggja hæða hús með risi sem myndar hring umhverfis Garðatorg með verslunum á jarðhæð og bílakjallara undir torginu. Þá er gert ráð fyrir að byggðar verði um 200 íbúðir á hinu nýja Garðatorgi.

Nýja skipulagið var upphaflega hannað af arkitektunum Neil Morris og Brent Katzin frá bresku arkitektasofunni ENGLE, en íslenska arkitektastofan THG arkitektar mun vinna tillögu að deiliskipulagi í samstarfi við skipulagsnefnd Garðabæjar.

Samkvæmt nýlegu samkomulagi menntamálaráðherra og bæjarstjórnar Garðabæjar verður byggt húsnæði fyrir Hönnunarsafn Íslands á Garðatorgi og mun það verða mikilvægur hluti af heildarmynd svæðisins.

Það er fasteignarfyrirtækið Klasi hf sem hefur þróað hugmyndirnar á sl. tveimur árum í samstarfi við Garðabæ og hagsmunaaðila á Garðatorgi og verður samningurinn undirritaður nú í hádeginu.

Stórar myndir af skipulagstillögunni hér að neðan




Fleiri fréttir

Sjá meira


×