Ríkið sýknað af kröfu Ásatrúarfélagsins 28. nóvember 2006 19:18
Íslenska ríkið var í dag sýknað, í Héraðsdómi Reykjavíkur, af kröfum Ásatrúarfélagsins um sambærilegar greiðslur í sinn hlut frá hinu opinbera og þjóðkirkjan fær. Allsherjargoði telur þó að um áfangasigur sé að ræða. Samkvæmt lögum fær Ásatrúarfélagið sóknargjöld frá ríkinu líkt og aðrir þjóðkirkjusöfnuðir, önnur skráð trúfélög og Háskóli Íslands. Fjárhæðin reiknast þannig að fyrir hvern einstakling 16 ára og eldri sem skráður er í viðkomandi trúfélag greiðist ákveðin upphæð. Í málatilbúningi Ásatrúarfélagsins er því hins vegar haldið fram að þjóðkirkjan og sjóðir hennar fái til viðbótar margar aðrar greiðslur samkvæmt fjárlögum og frá ráðuneytum. Þær upphæðir séu 30 % til viðbótar við sóknargjöldin. Hilmar Örn Hilmarsson, allsherjargoði, segir að vegna þessa óréttlætis hafi félagsmönnum runnið blóðið til skyldunnar. Aðspurður hvort það sé ekki eðlilegt að í samfélagi þar sem ríki og kirkja séu eitt, njóti þjóðkirkjan fríðinda, bendir Hilmar á að í Noregi sitji önnur trúfélög við sama borð og þjóðkirkjan þegar kemur að fjárstuðningi frá norska ríkinu. Það sé sjálfsagt frelsi fyrir trúarfélög að fá styrk frá ríkinu. Hilmar segir að hluti sýknudómsins í dag sé þó jákvæður fyrir Ásatrúarfélagið, því í dómsorði hafi komið fram að önnur trúfélög njóti ekki sama réttar og þjóðkirkjan. Það sé hins vegar ekki dóma að breyta því þar sem kveðið er á um slíkt í stjórnarskrá. Alþingi þurfi því að breyta lögunum. Ásatrúarfélagið ætlar ekki að láta hér við sitja, heldur áfrýjar málinu til Hæstaréttar.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Erlent Fleiri fréttir Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Sjá meira