Nær bestu helgum sumarsins 1. júlí 2006 10:00 Unnur Birna Vilhjálmsdóttir Er stödd hér á landi fram á sunnudag og verður allan þann tíma í faðmi fjölskyldunnar á Landsmóti hestamanna. MYND/Hari "
Ég kom á miðvikudagskvöldið og brunaði þá bara beint á Landsmót hestamanna. Þetta er stutt stopp fram á sunnudag þannig að ég verð fyrir norðan allan tímann," segir Unnur Birna Vilhjálmsdóttir, Ungfrú heimur. Unnur hefur verið á flakki um heiminn en var síðast hér á landi í byrjun júní. Hún hefur meðal annars farið til Wales, Póllands og Þýskalands þar sem hún horfði á fótboltaleik í boði Hyundai-bílaumboðsins. "Það var alveg geggjað að fara á leikinn enda stemningin ólýsanleg." Þaðan lá leiðin til Zürich í Sviss þar sem Unnur Birna var beðin um að kynna tískusýninguna Avant Garde fyrir fatahönnuðinn Valentino. Hann heldur svona sýningu árlega þar sem hann býður til sín fatahönnuðum og hárgreiðslufólki víðs vegar að í heiminum. "Ég hélt að þetta yrði auðvelt verkefni en svo reyndist ekki vera. Ég var alein að kynna fyrir framan tvö þúsund manns og þetta var tekið upp og verður sýnt um alla Evrópu." Unnur fær lítið frí í sumar en svo heppilega vill til að hún fékk að koma heim sömu helgina og Landsmótið var haldið. Næst kemur hún um verslunarmannahelgina þar sem hugmyndin er að fara í langa hestaferð. "Ég er alveg ótrúlega ánægð með að ná þessum aðalhelgum sumarsins á Íslandi vegna þess að ég ræð engu um það hvenær ég fer í frí." Unnur er fyrir norðan í faðmi fjölskyldunnar enda öll mikið hestaáhugafólk. Hún hefur sjálf keppt á Landsmótinu síðan hún var lítil en getur ekki tekið þátt í ár enda ekkert búin að þjálfa í vetur. "Ég er bara svo ánægð að vera hér núna og ætla að njóta mín í botn," segir Unnu Birna hlæjandi.
Menning Mest lesið Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Lífið Stiklusúpa: Sturlað leikjahaust og vetur í vændum Leikjavísir Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Lífið Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið Vinsælasta ABBA-sýning heims í Hörpu og Hofi Lífið samstarf Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Sjá meira