Lífið

Fyrsta lag Bigga

biggi Birgir Örn Steinarsson gefur út sína fyrstu sólóplötu í september.
biggi Birgir Örn Steinarsson gefur út sína fyrstu sólóplötu í september.

Fyrsta lagið af væntanlegri sólóplötu Bigga úr Maus er komið í spilun í útvarpi. Platan hefur hlotið nafnið "id" og kemur út í september á vegum 12 Tóna.

Lagið heitir The Hard Way og er popplag sem ætti að vera ágætis vísbending um þá stefnubreytingu sem Biggi hefur tekið frá þeirri tónlist sem Maus er þekkt fyrir.

Biggi hefur verið að prufa sig áfram með eigið efni í nokkur ár en það var ekki fyrr en í lok árs 2004, eftir að það varð ljóst að Maus væri á leiðinni í áralangt frí, að hann ákvað að klára plötu einn síns liðs. Hann sá samstarfsslitin líka sem gott tækifæri til þess að skipta um umhverfi og fluttist til London til að einbeita sér að tónlistarsköpun sinni.

Platan er unnin með breskum raftónlistargúru að nafni Tim Simenon sem hingað til hefur verið þekktastur fyrir störf sín með Depeche Mode, Neneh Cherry, Sinead O"Connor, Björk og sinni eigin hljómsveit Bomb The Bass.

Biggi býr og starfar enn í London þar sem hann kemur reglulega fram með sex manna sveit sem er mönnuð djass- og klassískmenntuðum hljóðfæraleikurum. Sveitina kallar hann The Bigital Orchestra og er von á einhverju tónleikahaldi á Íslandi á komandi mánuðum.

Lagið The Hard Way og önnur hljóðdæmi eftir Bigga er að finna á síðu hans, myspace.com/bigital.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.