Atvinnuflugmenn hafa áhyggjur af flugöryggi 31. desember 2006 12:45
Flugmálastjórn hefur sent frá sér ályktun vegna bréfs frá öryggisnefnd Félags íslenskra atvinnuflugmanna frá því gær. Í bréfi öryggisnefndarinnar eru félagsmenn FÍA hvattir til sérstakrar árvekni við störf sín vegna viðbúnaðaráætlunar flugmálayfirvalda vegna skorts á flugumferðarstjórum og flugmönnum bent á að tilkynna án tafar hnökra í áætluninni er geta varðað flugöryggi.Flugmálastjórn segir hins vegar í ályktun sinni að viðbúnaðaráætlun hennar sé sérstaklega sett til þess að halda uppi fullu flugöryggi við óvenjulegar aðstæður. Þetta eigi bæði við á farflugsleiðum og í flugi kringum flugvelli, þar sem þjónustu verður breytt í flugupplýsingaþjónustu. „Augljóst er að nokkuð dregur úr afkastagetu af þessum orsökum, en flugöryggi er ekki skert á neinn hátt.Vegna takmarkanna í viðbragðsáætluninni verður flugöryggisstig í sumum tilvikum hærra en við hefðbundnar aðstæður þar sem aðskilnaður er tryggður fyrirfram með því að beina flugumferð inn á fasta ferla fremur en að leyfa lítt heftar flugáætlanir, sem verður oft að vera undir stöðugri ratsjárstjórn til að tryggja aðskilnað og kalla á meira vinnuframlag flugumferðarstjóra.Ratsjáreftirlit verður fyrir hendi en ekki verður veitt aðskilnaðarþjónusta með ratsjá nema í undantekningartilvikum. Engin vandkvæði verða á fjarskiptasambandi við flugstjórnarmiðstöðina eða flugturna þótt ætlast sé til að fjarskipti við leiðarflug á úthafinu fari að mestu fram gegnum Gufunes fjarskiptastöðina.Umferð um Reykjavíkurflugöll verður takmörkuð þannig að engin vandkvæði verða á aðskilnaði flugvéla. Flugupplýsingaþjónustan þar sem á öðrum flugvöllum verður í höndum mjög reyndra einstaklinga.Flugmálastjórn áréttar ennfremur að fulltrúaröryggisnefndar FÍA voru viðstaddir kynningu á áætluninni og tóku þátt í umræðum um hana á fundi með forsvarsmönnum flugumferðarsviðs Flugmálastjórnar Íslands sl. fimmtudag. Engar sérstakar áhyggjur vegna flugöryggis munu hafa komið fram á þessum fundi af hálfu fulltrúa ÖFÍA eða frá öðrum fulltrúum flugrekenda, sem sátu þennan fund og annan slíkan sl. föstudag.Fyrir liggur að flugumferðarstjórum hjá Flugmálastjórn Íslands hafa verið boðin óbreytt launakjör og lífeyristryggingar eins og öðrum starfsmönnum stofnunarinnar, enda eru kjarasamningar í fullu gildi. Tæplega 160 manns hafa þekkst störf á þessum grundvelli þar á meðal um 25 flugumferðarstjórar. Flugstoðir ohf. hafa enga leið til að þröngva mönnum til að þiggja starf hjá félaginu ef þeir telja þau ekki fýsileg. Hins vegar mun félagið vinna að því að fjölga starfsmönnum og auka þjónustustigið eins fljótt og kostur er eftir að það tekur til starfa," segir í tilkynningu Flugmálastjórnar.
Mest lesið Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Meloni segir Trump skrökva upp á sig Erlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Innlent Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Innlent Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Innlent Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Erlent Fleiri fréttir Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Fresta opnun Sundhallar Reykjavíkur Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Vetur í íslenskri kvikmyndagerð Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Hjartaljósin ekki sloppin „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Stór mál á dagskrá síðasta þingfundar fyrir þingfrestun Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Sjá meira