Allir álfar velkomnir á Stokkseyri 30. desember 2006 19:30
Allir landsins draugar hafa þegar fengið athvarf í gömlu frystihúsi á Stokkseyri og nú um áramótin verða álfar boðnir velkomnir þangað líka. Þór Vigfússon og Bjarni Harðarson kveða þar gamla vísu að fornum sið til að bjóða álfum til nýrra heimkynna. Álfa-, trölla- og norðurljósasafnið er í þúsund fermetra rými á fyrstu hæð gamla frystihússins Hólmarastar en þar er búið að búa ýmsum vættum íverustað, þar sem náttúrulegu umhverfi þeirra er ógnað, að sögn Þórs Vigfússonar. Hann segir klappir og kletta hafa verið sprengda og grafna í sundur til að rýma fyrir húsgrunnum, jarðgöngum og fleiri mannanna verkum og álfar og huldufólk séu því víða á hrakhólum. Safnið er nú opið fyrir álfa og tröllin eru væntanleg á þorranum, en fólki verður ekki boðið í heimsókn fyrr en þessar vættir eru búnar að búa um sig, einhvern tíma á útmánuðum. Auk þjóðsagnapersóna eiga listamenn, tónminjasafn og jafnvel orgelsmiður hæli í Hólmaröst. Þar að auki eru á Stokkseyri veiðisafn, töfragarður og ýmis önnur dægradvöl. Vísan sem kveðin verður í kvöld á Stokkseyri, en siður er að hafa yfir á gamlárskvöld, er á þessa leið: "Komi þeir sem koma vilja, fari þeir sem fara vilja, veri þeir sem vera vilja, mér og mínum að meinalausu."
Mest lesið Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Innlent „Botninum hefur verið náð“ Innlent „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Erlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess Innlent Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Erlent Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Innlent Fleiri fréttir Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Sjá meira