Innlent

Ný stjórn Landsvirkjunar

Í morgun var skipuð ný stjórn Landsvirkjunar sem tekur við frá og með næstu áramótum. Fækkað var í stjórninni úr sjö í fimm. Jóhannes Geir verður áfram stjórnarformaður Landsvirkjunar og Ágúst Einarsson situr einnig áfram í stjórninni en þrír stjórnarmannanna eru nýir. Þau Margrét Sanders, löggiltur endurskoðandi, Valur Valsson, fyrrverandi bankastjóri og Jóna Jónsdóttir, viðskiptafræðingur.

Um áramótin tekur ríkið yfir eignarhlut Reykjavíkurborgar og Akureyrarbæjar í Landsvirkjun og verður fyrirtækið þá sameignarfélag í eigu ríkisins og Eignarhluta ehf.

Nýja stjórn skipa:

Jóhannes Geir Sigurgeirsson, stjórnarformaður, Öngulsstöðum

Ágúst Einarsson, prófessor, Seltjarnarnesi

Margrét Sanders, löggiltur endurskoðandi, Reykjanesbæ

Valur Valsson, fyrrverandi bankastjóri, Reykjavík

Jóna Jónsdóttir, viðskiptafræðingur, Akureyri

Varamenn verða:

Vigdís M. Sveinbjörnsdóttir, bóndi, Egilsstöðum

Sveinn Agnarsson, hagfræðingur, Reykjavík

Valdimar Hafsteinsson, framkvæmdastjóri, Hveragerði

Þórður Sverrisson, forstjóri, Hafnarfirði

Ágústa Björnsdóttir, útibússtjóri, Egilsstöðum

Úr stjórninni ganga:

Álfheiður Ingadóttir, útgáfustjóri, Reykjavík

Illugi Gunnarsson, hagfræðingur, Reykjavík

Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri, Akureyri

Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarfulltrúi, Reykjavík

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri, Reykjavík




Fleiri fréttir

Sjá meira


×