Innlent

Nokkrir dvöldu í athvörfum síðustu nótt

Á annað hundrað manns snæddi jólamat hjá Hjálpræðishernum í gærkvöldi. Liðsmaður Hersins segir þá sem þangað leita oft einmana og ekki hafa í nein önnur hús að venda. Nokkrir eyddu nóttinni í athvörfum.

Borðhald hófst þegar jólunum var hringt inn klukkan sex í gær og voru um hundrað og tuttugu manns í matnum. Nokkuð var um söng og jólaguðspjallið var lesið. Björn Tómas Kjaran hjá Hjálpræðishernum segir hópinn sem þangað leitar fjölbreyttan og marga ekki hafa í önnur hús að vernda. Boðið var upp á lambalæri, hangikjöt og grísahnakka í gær og líkt og venja er um jólin fengu allir sinn pakka.

Tvö athvörf eru fyrir heimilislausa á höfuðborgarsvæðinu, Gistiskýlið og Konukot. Þrettán gistu síðastliðna nótt í Gistiskýlinu og snæddu einhverjir þeirra fyrr um kvöldið hjá Hjálpræðishernum. Þrjár konur gistu í Konukoti en þar er pláss fyrir átta konur. Ungur kokkur bauðst til að elda fyrir konurnar sem dvöldu þar. Í Kvennaathvarfinu gistu þrjár konur með fjögur börn þessa aðfaranótt jóladags.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×