Ekki hægt að dæla olíu úr flutningaskipinu fyrr en eftir hátíðarnar 22. desember 2006 19:12
Ólíklegt er að hægt verði að hefja dælingu úr flutningaskipinu Wilson Muuga, sem strandaði við Hvalsnes, fyrr en eftir hátíðarnar. Könnunarleiðangur sem farinn var í dag leiddi í ljós að olía hefur lekið úr skipinu en hún hefur ekki náð upp í fjöru. Í nótt er spáð vonskuveðri sem kemur til með að reyna mjög á skipið. Landhelgisgæslan flug um hádegi í dag með fjóra starfsmenn Olíudreifingar um borð í skipið. Könnuðu þeir ástandið á olíutönkunum í skipinu. Í ljós koma að botntankar skipsins eru skaddaðir. Davíð Egilson, forstjóri Umhverfisstofnunar, segir olíuflekki hafa borist frá skipinu. Hún virðist þó ekki leka nema í litlu mæli og brotna niður í sjónum en í könnunarflugi sem farið var í dag sást engin olía uppi í fjöru. Veðrið hefur verið slæmt á strandstað. Skipið stóð af sér veðrið í nótt, er stöðugt og hefur lítið hreyfst. Ekki er heldur að merkja neinar breytingar á skrokk skipsins. Til að hægt verði að koma nauðsynlegum búnaði til olíudælingar um borð þarf veðrið að haldast skaplegt í um tíu klukkustundir. Aðeins hafa gefist þrjár til fjórar klukkustundir á dag til vinnu um borð í skipinu. Davíð segir allt tilbúið til dælingar ef veður gefst. Slæmt veður sé hins vegar framundan og ekki búist við að það dragi úr því fyrr en líða tekur á hátíðarnar. Davíð segir ljóst að ekki verði hægt að byrja að dæla olíu úr skipinu fyrr en eftir hátíðarnar. Skipið veikist eftir því sem beðið verður lengur. Í nótt er spáð vonskuveðri sem kemur til með að reyna mjög á skipið. Starfsmenn fara því aftur út í skipið á morgun til að kanna ástand þess.
Mest lesið Kölluð út á efsta forgangi þegar tveir féllu útbyrðis Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi Innlent Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Innlent „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Innlent Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Erlent Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi þegar tveir féllu útbyrðis Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Sjá meira