Davíð Oddsson er ekki hress yfir matinu 22. desember 2006 16:54 Davíð útskýrir stýrivaxtahækkunina í Seðlabankanum í gær
Gengi krónunnar lækkaði um 2,72 prósent og gengi hlutabréfa í Kauphöll Íslands lækkaði talsvert eftir að matsfyrirtækið Standard & Poor's greindi frá því í dag að það hefði lækkað lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs Íslands. Lánshæfismat Íbúðalánasjóðs og Landsvirkjunar lækkaði í kjölfarið. Matsfyrirtækið segir lækkanirnar endurspegla minnkandi aðhald í ríkisfjármálum í aðdraganda þingkosninga á næsta ári og líkur hafi aukist á harðri lendingu í efnahagslífinu. Moody´s matsfyrirtækið staðfestir hinsvegar gildandi mat sitt á lánshæfi ríkissjóðs. Davíð Oddsson, seðlabankastjóri, segist ekki hress yfir matinu og að menn hefðu gjarnan viljað vera lausir við það. Nýja lánshæfismatið muni þó ekki valda ríkissjóði vandræðum vegna lítillar lánsfjárþarfar hans. Hann segir að áhrifin verði hinsvegar meiri á markaðinn og á stöðu krónunnar og þarmeð á verðbólgu. Hann óttast þó ekki að krónan haldi áfram að lækka því hún sé nú nærri sögulegu jafnvægi, ólíkt því þegar hún féll í vor. Davíð sagði í samtali við fréttastofuna í dag, að matsfyrirtækið Standard & Poor's sé iðið við að breyta lánshæfismatinu til hækkunar og lækkunar og ekki nærri því eins stabílt og Moody´s sem hélt sínu lánshæfismati óbreyttu. Davíð sagði að samkvæmt nýju einkunn Standard & Poor's væri Ísland með sömu einkunn og Ítalía. Gengi hlutabréfa lækkaði mest í Exista eða um 3,13 prósent eftir að mat Standard & Poor's var birt skömmu eftir hádegisbil í dag. Gengi bréfa í Landsbankanum lækkaði um 2,96 prósent en bréf FL Group um 2,71 prósent. Einungis gengi bréfa í Atlantic Petroleum, Atorku Group og Tryggingamiðstöðinni hækkuðu í dag. Matsfyrirtækið segir lækkanirnar endurspegla minnkandi aðhald í ríkisfjármálum í aðdraganda þingkosninga á næsta ári og líkur hafi aukist á harðri lendingu í efnahagslífinu á næsta ári. Standard & Poor's segir, að lækkunin endurspegli minnkandi aðhald í ríkisfjármálum í aðdraganda þingkosninga. „Breytingar við afgreiðslu fjárlaga 2007 eru þensluhvetjandi á sama tíma og brýn þörf er á að draga úr þjóðhagslegu ójafnvægi sem stafar af óhóflegri innlendri eftirspurn." Standard & Poors segir að þessi þensluhvetjandi stefna sé æ meira á skjön við stefnuna í peningamálum sem hafi knúið Seðlabankann til hækka vexti, síðast um 0,25 prósentur í gær. „Þar með aukast líkur á harðri lendingu íslenska hagkerfisins þegar dregur úr því þjóðhagslega ójafnvægi sem skapast hefur síðan útlána- og fjárfestingaþenslan hófst fyrir tveimur árum," segir matsfyrirtækið.
Mest lesið Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Innlent Rúta valt á Kjalarnesi Innlent Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Innlent Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Innlent Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Erlent Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Innlent Lilja mætt aftur á Alþingi Innlent Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Innlent Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Erlent Fleiri fréttir Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Sjá meira