Nýtt varðskip til um mitt ár 2009 20. desember 2006 15:17 Teikning af nýja varðskipinu
Reikna má með því að nýtt varðskip verði komið í flota Landhelgisgæslu Íslands um mitt ár 2009 en samningur um smíði þess var undirritaður í dag. Það gerðu Björn Bjarnason dómsmálaráðherra, Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra og Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands ásamt Carlos Fanta de la Vega, forstjóra skipasmíðastöðvarinnar ASMAR í Chile, sem átti lægsta tilboð í smíði skipsins.Fram kemur í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu að varðskipið verði mun stærra, öflugra og betur búið en þau varðskip sem nú eru í rekstri. Ægir og Týr eru um 71 m á lengd og 10 á breidd og um 1.300 brúttótonn en nýtt varðskip verður 93 m á lengd, 16 m á breidd og 4.000 brúttótonn. Þá verður togkraftur þess um 100 tonn miðað við um 56 tonna togkraft á Ægi og Tý.Einnig kemur fram í tilkynningunni að skipasmíðastöðin ASMAR hafi alls smíðað fjögur skip fyrir Íslendinga og þar er nú verið að smíða einn fullkomnasta togara heims fyrir Færeyinga. Skipasmíðastöðin hafi því aflað sér mikilvægrar reynslu varðandi þær kröfur sem gerðar eru fyrir skip til siglinga á Norður-Atlantshafi. Rolls Royce í Noregi hannar skipið og leggur til ýmsan búnað í það. Skipið kostar 29,4 milljónir evra í smíði eða nærri 2,7 milljarða króna. Smíðatími skipsins 30 mánuðir og verður því nýtt varðskip komið í flota Landhelgisgæslu Íslands um mitt ár 2009.
Mest lesið Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Innlent Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Innlent Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Innlent Pilturinn er fundinn Innlent Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Erlent Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja Innlent Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Erlent Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Innlent Fleiri fréttir Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Pilturinn er fundinn „Skýr vísbending um að gera þurfi betur í málefnum erlendra barna“ Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Inga Sæland með galsa á þingi í nótt „Orðaskiftismetið tikið“ Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla Sjá meira