Einn fórst og nítján bjargað eftir strand flutningaskips 19. desember 2006 18:44
Danskur strandgæslumaður fórst en nítján menn björguðust þegar flutningaskip strandaði við Hvalsnes skammt frá Sandgerði snemma í morgun. Átta sjóliðar af danska strandgæsluskipinu Triton lentu í sjávarháska þegar smábáti, sem þeir voru í, hvolfdi við björgunaraðgerðirnar. Flutningaskipið Wilson Muugo, sem skráð er á Kýpur, var á leið frá Grundartanga til Murmansk í Rússlandi þegar það strandaði við Hvalsnes rétt fyrir klukkan fimm í morgun. Skipstjórinn óskaði ekki strax eftir björgunaraðstoð, en þegar leki var kominn að skipinu upp úr klukkan fimm, óskaði hann eftir aðstoð dráttarbáts. Þá þegar höfðu björgunarsveitir á Suðurnesjum og á höfuðborgsarsvæðinu brugist við og varðskipunum Tý og Ægi var stefnt á strandstað. Danska varðskipið Triton var fyrst á vettvang og fóru átta skipverjar þess út á léttabát og sigldu í átt að flutningaskipinu, en léttabátnum hvolfdi og lentu dönsku skipverjarnir allir í sjónum. All hvasst var þegar skipið strandaði og var það nánast upp í fjöru. Yfir eitt hundrað björgunarsveitarmenn biðu átekta í myrkrinu og reiðubúnir í aðgerðir. Áður en danska léttabátnum hvolfi um átta leytið höfðu menn á björgunarbátnum Hannesi Þ Hafstein frá Sandgerði þurft frá að hverfa vegna brims. Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar og þyrla frá danska skipinu hófu þegar leit að dösnku varðskipsmönnunum. Um tíu leytið hafði tekist að bjrga sjö þeir úr sjónum, en sá áttundi náðist ekki fyrr en um eða upp úr hádegi og var þá látinn. Á meðan þessu fór fram voru 12 skipverjar um borð í flutningaskipinu sem var all stöðugt á strandstaðnum. Guðmundur Ásgeirsson, stjórnarformaður Nesskipa, sem er umboðsaðili flutningaskipsins, segir að skipstjórinn hafi gefið þá skýringu á strandinu að sjálfstýring þess hafi bilað. Þrátt fyrir að hún hafi verið aftengd og skipið stöðvað og stillt á handstýringu, hafi ekki tekist að afstýra strandinu. Skömmu fyrir klukkan ellefu kom stærri þyrla Landhelgisgæslunnar að flutningaskipinu og stýrimaður og sigmaður Gæslunnar sigu um borð í skipið. Tilraunum til að koma mönnum í land biðu þó enn, en línu var skotið út í skipið og undirbúningur hafinn til að ferja skipshöfnina í land með þeim hætti. Gunnar Stefánsson, sviðsstjóri björgunarsviðs á staðnum, segir að það hafi flægt aðgerðina þegar danirnir lentu í sjónum. Því hafi skipverjar flutningaskipsins ekki verið teknir fyrr í land, enda ekki í bráðri lífshættu. TF-SIF, minni þyrla Gæslunnar, kom aftur á vettvang strandsins upp úr klukkan eitt og hóf að flytja skipverja flutningaskipsins í land. Sif ferjaði áhöfnina og starfsmenn Landhelgisgæslunnar í land í þremur ferðum og var skipstjórinn í síðasta hópnum. Yfirheyrslur eru þegar hafnar yfir skipstjóranum og áhöfn hans, sem er öll rússnesk utan einn skipverja sem er Pólverji. Þá þarf að yfirheyra menn í tengslum við slys dönsku sjóliðanna. Gunnar Stefánsson segir að nú taki við nokkurra sólarhringa vinna við að tryggja að olía í flutningaskipinu lendi ekki í sjónum og valdi mengun. Verktakar voru kallaðir á staðinn til að leggja veg niður að strandstaðnum og verið er að flytja alls kyns búnað og tanka á staðinn til að koma olíunni á land. En um borð í skipinu eru 120 tonn af svartolíu og 25 tonn af díselolíu.sem mikil áhersla er lögð á að komist ekki í sjóinn. Um miðjan dag í dag fannst svo léttabátur dönsku skipverjanna um tvo kílómetra norður af strandstaðnum, utan við bæinn Nesjar. Það voru Páll Ketilsson og Hilmar Bragi Bárðarson, fréttaritarar Stöðvar 2 í Reykjanesbæ sem fundu bátinn mjög heillegan. Sex þeirra Dana sem komust lífs af hefur verið leyft að fara heim af sjúkrahúsi, en einum þeirra verður haldið á sjúkrahúsi í nótt að minnsta kosti vegna ofkælingar.
Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Innlent „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Fleiri fréttir Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Sjá meira