Keflavíkurflugvöllur auðveldari eftir að herinn fór 14. desember 2006 18:30
Íslenskir aðilar eiga mun auðveldar með að athafna sig á Keflavíkurflugvelli eftir að herinn fór. Samgönguyfirvöld taka endanlega yfir rekstur flugvallarins af utanríkisráðuneytinu snemma á næsta ári. Flugmenn leggja áherslu á að flugbraut sem herinn lét loka verði opnuð á nýjan leik. Við skyndilega brottför hersins þurftu menn að bregðast skjótt við í breytingum á resktri Keflavíkurflugvallar og enn er verið að undirbúa framtíðarskipan flugvallarins. Ýmis starfsemi, eins og rekstur flugbrauta, heyrir nú alfarið undir Íslendinga, sem enn sem komið er notast að hluta til við búnað sem leigður er af Bandaríkjaher. Leiga á snjóruðningstækjum er t.d. til ellefu mánaða en framlengja má leigutíma í fjögur ár að þeim tíma liðnum á flestum tækjanna. Á fundi sem Félag íslenskra atvinnuflugmanna boðaði til í dag, sagði Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, að hvergi verði slegið af kröfum um öryggi og gæði í resktri flugvallarins þegar hann fer undir ráðuneyti hans. Sérstakur starfshópur var skipaður eftir að Alþingi setti lög um að starfsemi Keflavíkurflugvallar færi undir samgönguráðuneytið. Sturla býst við tillögum frá hópnum í febrúar og leggur áherslu á að eftir það verði unnið fljótt að því að færa starfsemina alla undir ráðuneytið. Stjórnsýslan fer þá undir Flugmálastjórn Íslands og sérstök flugmálastjórn á Keflavíkurflugvelli leggst af. Flugleiðsöguþjónustan fer undir Flugstoðir, nýtt hlutafélag í eigu ríkisins, sem tekur við allir flugstjórn og rekstri flugvalla um áramót, þegar starfsemi Flugmálastjórnar Íslands verður skipt upp. Á fundinum kom fram í máli flugvallarstjórans, að Íslendingar eiga nú auðveldar með að athafna sig á Keflavíkurflugvelli, þegar ekki þarf að taka tillit til hersins. Suðvestu-Norðaustur flugbraut Keflavíkur var lokað fyrir nokkrum árum, og stefnt er að því að loka flugbraut sem liggur í sömu áttir í Reykjavík. Jóhannes Bjarni Guðmundsson, varaformaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍIA) segir mjög mikilvægt að flugbraut sem þessi sé til staðar á suð-vesturhorni landsins. Samgönguráðherra tók ekki illa í að opna brautina í Keflavík á nýjan leik, en það mun hafa talsverðan kostnað í för með sér, þar sem allur ljósa- og aðflugsbúnaður var tekinn af brautinni þegar herinn lokaði henni.
Mest lesið Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Fleiri fréttir Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“ Mótmæla hvalveiðum Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Bergmál, biðlistar og bongóblíða Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Þrjár alvarlegar líkamsárásir til rannsóknar: „Puttabrotinn á Sjallanum“ Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Sjá meira
Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“