Innlent

Karpað um mat

Oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn Reykjavíkur segir borgarstjóra tvísaga um þátt sinn í kaupum borgarinnar á fjórum hekturum í Norðlingaholti sem voru í eigu Kjartans Gunnarssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins. Borgarstjóri segir oddvitann hins vegar snúa út úr orðum embættismanns.

Málavextir eru með þeim hætti að í tíð Þórólfs Árnasonar, fyrrverandi borgarstjóra R-listans,krafðist Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins 110 milljóna fyrir tæplega 37 fermetra land sitt í Norðlingaholti. Eftir árangurslausar viðræður um við Kjartan ákvað borgin að krefjast eignarnáms. Í mars síðastliðnum komst matsnefnd eignarnámsbóta að þeirri niðurstöðu að verðmæti lóðar Kjartans væri orðið 208 milljónir króna.

Þann 6. apríl lagði borgarritari og sviðsstjóri lögfræðisviðs, Kristbjörg Stephensen, fram minnisbréf þar sem hún lýsir þeirri skoðun sinni að fullt tilefni sé til að reyna á niðurstöðu matsnefndarinnar fyrir dómi, of hátt lóðaverðmæti og illa rökstutt mál skipti þar mestu. Þó verði ekki á vísann að róa um niðurstöðu dómsins. Og styrinn milli meiri- og minnihluta stendur greinilega um bréf Kristbjargar og túlkun þess. Sjálf segir hún að meirihlutinn túlki bréf hennar rétt.

Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar segir að málið snúist einfaldlega um ákvörðun meirihlutans í borginni að lúta dómi matsnefndarinnar og borga þar með okurverð fyrir lóð Kjartans. Verð fyrir 26 landskika á sömu slóðum sé langt fyrir neðan verðið sem borgarstjóri vilji borga fyrir lóð Kjartans. Borgarstjóri hafi leynt borgarráði ákvörðun sínum og vísi í minnisblað Kristbjargar þess efnis þó túlka megi bréf hennar og tillögur á þann veg að ekki eigi að borga svo hátt verð fyrir lóðina. Það sé óeðlilegur framgangur máls.

Borgarstjóri er ekki sammála þessu og segir Dag reyna að gera orð Kristbjargar tortryggileg í þessu máli. Hátt lóðaverð sé fráfarandi meirihluta að kenna. Hann skilji borgarritara sem svo að kostnaður við dómsmál muni verða verulegur og alls ekki víst að borgin vinni málið.

Þess má geta til samanburðar að Kópavogsbær hefur aldrei unað niðurstöðum matsnefndar eignarnámsbóta og ávallt farið með þær fyrir dóm.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×