SA hótar RÚV málssókn vegna innheimtuaðgerða 7. desember 2006 14:53 MYND/GVA
Samtök atvinnulífsins hóta því að láta reyna á það fyrir dómstólum hvort Ríkisúvarpinu sé heimilt að að krefja fyrirtæki um auknar greiðslur afnotagjalda vegna útvarpstækja í bílum.Fram kemur á vef samtakanna að þau hafi mótmælt hörku innheimtudeildar RÚV vegna þessa en lítil viðbrögð fengið. Samtökin hafi efasemdir um að RÚV hafi skýra heimild samkvæmt lögum að innheimta afnotagjöld vegna bílaútvarpa.Benda samtökin enn fremur á að með þessu fyrirkomulagi á innheimtu útvarpsgjalds sé fyrirtækjum mismunað eftir því í hvers konar rekstri þau eru. Þannig fái hótel sem er með útvarpstæki í hverju hótelherbergi afslátt af útvarpsgjaldi en fyrirtæki sem geri út nokkurn fjölda bifreiða njóti ekki samskonar afsláttar. Megi leiða líkur að því að í þessari framkvæmd felist brot á jafnræðisreglu stjórnsýslulaga.Þá bendir SA á að samkvæmt óformlegri könnun SA virðist það tilviljunum háð að hvaða fyrirtækjum þessi nýja skattheimta RÚV beinist. Þannig virðist skattheimtan ekki vera almenn heldur eingöngu beinast að fáum útvöldum fyrirtækjum og að auki virðist innheimtan ekki vera í neinu samræmi við fjölda atvinnubifreiða þeirra fyrirtækja sem fyrir henni verða. Slík handahófskennd skattheimta skekki mjög samkeppnisstöðu fyrirtækja á sama markaði og geti ekki talist samræmast góðum stjórnsýsluháttum.Samtök atvinnulífsins segja að verði skattheimtu RÚV haldið til streitu verði látið reyna á réttmæti hennar fyrir dómsstólum en þar til dómur fáist í málinu verði þeir sem ósáttir eru við innheimtuna að búa við það að greiða afnotagjöldin með fyrirvara um lögmæti þeirra.
Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira