Áfengi gæti hækkað í verði um allt að 23 % 30. nóvember 2006 18:43
Áfengi mun hækka í verði á bilinu fjögur komma þrjú til tuttugu og þrjú prósent með fyrirhugaðri breytingu á áfengisgjaldi og virðisaukaskatti. Mesta hækkunin á bjór, samkvæmt útreikningum birgja, verður rúmlega 21 prósent. Um leið og ríkissjóður lækkar virðisaukaskatt á matvæli í mars á næsta ári, hækkar svo kallað áfengisgjald. En áfengisgjaldið er fast gjald sem lagt er á í þremur flokkum, bjór, léttvíni og sterku áfengi. Gjaldið byrjar að reiknast þegar vínandamagn fer yfir 2,25 prósent. Hver flokkur hefur síðan krónutölu sem margföldunarstuðul sem margfaldast með vínanda styrkleikanum, og það eru þessir stuðlar sem ríkisstjórnin vill hækka um 60 prósent. En þá lítur dæmið t.d. svona út hvað bjórinn varðar. Ef tekið er dæmi af 5,6 prósent sterkum bjór, þá mun kassinn af honum hækka um 888 krónur, sem þýðir að dósunum í kassanum fækkar í raun um fjórar, miðað við núverandi verð. Ef þetta verður raunin er ríkið að taka til sín mun meira af verði hvers bjórs. Höldum okkur við dæmið af bjórnum hér að framan. Í dag er útsöluverð hans 223 krónur, álagning ÁTVR, virðisaukaskattur, áfengisgjald og skilagjald er samanlagt 170,84 krónur. En skoðum nú hvernig bjórdósin lítur út ef frumvarpið verður að lögum. Þá verður útsöluverðið 261 króna og ríkið tekur til sín 209 krónur af útsöluverði þessa bjórs. Í dag er hlutur ríkisins 76,6 prósent, en eftir breytingu yrði hlutur ríkisins í dósinni 80 prósent. Það sama er upp á teningnum hvað varðar sterkt áfengi. Flaska af 37,5 prósent sterkum Vodka sem kostar í dag 3.090 krónur, mun eftir breytinguna kosta 3.800 krónur. Hækkunin er 23 prósent. Verð á léttu víni mun líka hækka ef frumvarpið nær fram að ganga óbreytt. Og vegna þess að áfengisgjaldið miðast eingöngu við styrkleika áfengis, en ekki gæði þess, mun ódýrasta vínið hækka mest. Samkvæmt upplýsingum sem fréttastofan hefur frá birgjum, mun léttvín að meðaltali hækka um 10% í verði en dæmi verða um léttvín sem myndi hækka um allt að 20 prósent. Flestum þykir gaman að fara út að borða og fá sér góðan mat og gleðjast væntanlega yfir lækkun virðisaukaskatts á matvæli. Það er hins vegar hætt við því að bindindismenn einir gleðjist þegar kemur að því að greiða reikninginn.
Mest lesið Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Innlent Starmer segir af sér Erlent Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Innlent Einn kærður fyrir stórfellda líkamsárás Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar Erlent Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Erlent Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Erlent „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Innlent Fleiri fréttir Ekki lengur flestir sem útskrifast af náttúrufæðibraut Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Loka Sæbraut til austurs við Hörpu í kvöld Jarðskjálfti að stærð 3,1 í nótt Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Einn kærður fyrir stórfellda líkamsárás „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Flytur sig í starfi um 900 kílómetra Ekkert sem bendi til fækkunar fugla við Varmá Sjósundsmaður tilkynntur til lögreglu „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Árekstur við Seljalandsfoss Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“ Mótmæla hvalveiðum Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Bergmál, biðlistar og bongóblíða Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Þrjár alvarlegar líkamsárásir til rannsóknar: „Puttabrotinn á Sjallanum“ Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Sjá meira
Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“