Starfsmenn RÚV geta haldið lífeyrisréttindum 27. nóvember 2006 18:30
Dagný Jónsdóttir, varaformaður menntamálanefndar Alþingis, telur að starfsmenn Ríkisútvarpsins geti verið áfram í Lífeyrissjóði opinberra starfsmanna eftir að því verður breytt í hlutafélag. Össur Skarphéðinsson, varamaður í nefndinni, segir ekki ljóst hvað á að leggja mikla skatta á almenning til að standa undir rekstri félagsins. Enn er tekist á um frumvarpið um Ríkisútvarpið. Páll Magnússon, útvarpsstjóri, kom fyrir menntamálanefnd í morgun, en meirihluti nefndarinnar vill nú ræða að setja takmarkanir á stöðu Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði. Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður nefndarinnar, segir málið enn í vinnslu og verða rætt á vettvangi nefndarinnar á morgun og miðvikudag. Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður menntamálanefndar, segir að til umfjöllunar sé í nefndinni hvernig setja megi takmarkanir á Ríkisútvarpið á auglýsingamarkaði. Ýmsar hugmyndir hafi verið settar fram í þeim efnum, en niðurstaða sé ekki komin í málið. Eitt af stóru málunum í tengslum við frumvarpið um Ríkisútvarpið, snýr að réttindum starfsmanna stofnunarinnar, s.s. lífeyrisréttindum. Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar og varamaður í menntamálanefnd, segir ljóst eftir yfirferð málsins með Páli Magnússyni útvarpsstjóra á fundi nefndarinnar í morgun, að réttarstaða starfsfólksins sé í uppnámi. Það sé verið að bjóða starfsfólkinu óbreyttan samning og réttindi næstu tvö árin, en eftir það verði réttindamál starfsmannanna algerlega undir hælnum á útvarpsstjóra eða þeim sem stjórna Ríkisútvarpinu. Dagný Jónsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins og varaformaður menntamálanefndar, segir ekki hægt að binda hendur þeirra sem fari með næstu kjarasamninga hjá Ríkisútvarpinu. Framsóknarmenn hafi hins vegar lagt áherslu á að réttindi starfsmanna væru tryggð á meðan gengið væri í gegnum þessa formbreytingu og sér sýndist sem það muni ganga eftir. Þá telur Dagný að starfsmenn ríkisútvarpsins geti verið áfram í Lífeyrissjóði ríkisstarfsmanna, eftir að Ríkisútvarpið verður hlutafélag.
Mest lesið Hvað segja veðbankarnir? Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Fleiri fréttir Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Sjá meira