Innlent

Reynt að breyta niðurstöðu prófkjörs fyrir fjórum árum

Landssamband Sjálfstæðiskvenna óttast að framboð Árna Johnsen geti dregið úr fylgi flokksins á landsvísu og haft áhrif á gengi kvenna í baráttusætum listanna. Þá taka þær undir með ungum sjálfstæðismönnum sem brýndu fyrir þingmannsefninu að sýna auðmýkt en ummæli Árna um þau brot sem hann var dæmdur fyrir, að hann hafi gert tæknileg mistök, hafa farið fyrir brjóstið á mörgum. Árni skrifar grein í Morgunblaðið í dag, þar sem hann skýrir sína hlið málsins og segist iðrast djúp

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins segir ljóst að það sé óánægja og flokksmenn hafi lýst yfir áhyggjum sínum, bæði flokksfélög og einstaklingar. Það verði að bíða og sjá meðan kjörnefndin fari yfir málið.  Sigurður Valur Ásbjörnsson formaður kjördæmisráðs flokksins í Suðurkjördæmi segir að kjördæmisráð fái listann í hendur eftir að kjörnefnd hafi yfirfarið hann. Því næst verði hann lagður fyrir kjördæmisþing og að lokum miðstjórnarfund. Á síðasta kjördæmisþingi kom fram tilllaga frá stuðningsmönnum Kristjáns Pálssonar um að breyta listanum og það var þá samþykkt að kjósa um hvert og eitt sæti á listanum á þinginu með því að bera upp hvert nafn fyrir sig. Röð manna á listanum breyttist hinsvegar ekki þrátt fyrir kosninguna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×