Prestsfrú sökuð um að hlera sóknarnefndarfund í hesthúsi 27. október 2006 18:49
Sóknarnefndarmenn í Garðasókn töldu lögreglukonu, eiginkonu sóknarprests sem hatrammar deilur stóðu um, hafa hlerað sóknarnefndarfund í hesthúsi fyrir tveimur árum og fóru með málið til ríkislögreglustjóra. Þar á bæ segja menn umræðuna minna á skrípaleik og þessar ásakanir hafi verið gjörsamlegar fráleitar. Þetta sérkennilega mál kom upp fyrir tveimur árum þegar deilur stóðu sem hæst innan Garðasóknar milli þáverandi sóknarprests, Hans Markúsar Hafsteinssonar, og sóknarnefndar. Formaður sóknarnefndar, Matthías G. Pétursson, bauð þá sóknarnefndinni til fundar í hesthús sitt að Kjóavöllum ofan Garðabæjar, til að fá frið til að ræða málin. Urðu þeir þess þá varir að eiginkona sóknarprestsins var fyrir utan. Sóknarnefndarmenn töldu að prestsfrúin, sem jafnframt er aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra, væri með hlerunarbúnað í bíl sínum og væri á svæðinu í þeim tilgangi að hlera fundinn í hesthúsinu. Svo vissir voru þeir í sinni sök að þeir fóru með málið til ríkislögreglustjóra. Jón Bjartmarz, yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra, staðfestir að sóknarnefndarmenn hafi komið með erindi árið 2004 þar sem óskað hafi verið eftir því að kanna yrði hvort um slíkt gæti verið að ræða. Því hafi verið fljótsvarað. Embættið hafi ekki haft neinn slíkan búnað og því hafi ekki getað verið um neinar slíkar ólöglegar hleranir að ræða. Eðlilegt skýring hafi fundist á þessu. Viðkomandi lögreglumaður hafi haft þann starfa á þessum tíma að kanna útbreiðslu svokallaðs Tetra-fjarskiptakerfis. Það hafi verið hrein tilviljun að viðkomandi lögreglukona hafi verið stödd á svæðinu á þessu tíma, hún var einfaldlega að kanna fjarskiptasamband á svæðinu. Og yfirlögregluþjóninn undrast raunar þá umræðu sem er um hleranir þessa dagana. Þetta sé orðinn hálfgerður skrípaleikur. Það sé ljóst að ef fámenn lögregla á Íslandi ætlaði að stunda allar þessar hleranir, sem menn væru að tala um, þyrfti að fjölga allverulega í lögregluliðinu. Það sé gjörsamlega fráleitt að lögreglan hafi verið með búnað til að hlera sóknarnefndarfund í hesthúsi.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ Innlent „Ég er mjög kátur“ Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Fleiri fréttir „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Sjá meira