Innlent

Hólmavík í Financial times

Frá Hólmavík.
Frá Hólmavík. Mynd/Jón Jónsson

Í nýjasta tölublaði hins virta blaðs Financial Times er umfjöllun um nýlega könnun á hamingju þjóða þar sem Ísland var í fyrsta sæti. Fréttavefurinn Bæjarins besta greinir frá því að í umfjölluninni er sagt að Hólmavík sé sá staður á landinu þar sem hamingja ríki í mestum mæli. Vera má að blaðamaður hafi eitthvað misskilið hamingjuna á Hólmavík. Þegar hann var staddur á Íslandi var sagt frá könnuninni í fréttum á NFS, og jafnframt greint frá sérstökum Hamingjudögum á Hólmavík.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×