Innlent

Landsbankinn tekur risalán

Myndin er frá aðalfundi Landsbankans.
Myndin er frá aðalfundi Landsbankans. MYND/Einar Ólason

Landsbanki Íslands hefur tekið sambankalán upp á 600 milljónir evra eða 55 komma tvo milljarða íslenskra króna. Segir bankinn þetta líklega vera stærstu viðskipti sinnar tegundar sem íslenskt fjármálafyrirtæki hefur tekið þátt í, en 28 fjármálafyrirtæki í 16 löndum, auk Landsbankans taka þátt í láninu.

Í byrjun bauð Landsbankinn nokkrum fjármálafyrirtækjum þátttöku í sambankaláni að upphæð 300 milljónir evra en vegna mikillar eftirspurnar var lánið hækkað í tvöfalda þá upphæð.

Í fréttatilkynningu frá bankanum segir að kjörin á láninu séu með því allra besta sem íslenskir bankar hafa átt kost á frá því ástand á íslenskum fjármálamarkaði versnaði til muna fyrr á árinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×