Innlent

Búið er að opna veginn um Ljósaskarð

Úr myndasafni.
Úr myndasafni. Mynd/Vísir

Búið er að dæla öllu bensíni úr Bensínflutningabíll sem valt á veginum um Ljósavatnsskarð á milli Akureyrar og Húsavík laust fyrir klukkan níu í morgun og tók bensínið að flæða úr stórum geymi á tengivagni bílsins. Ökumaður bílsins var fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri en mun ekki hafa slasast alvarlega eftir því sem best er vitað. Lögregla frá Húsavík og Akureyri ásamt slökkviliði frá Akureyri og úr Þingeyjarsveit hafa verið á vettvangi til að koma í veg fyrir eldsvoða. Gat kom á tankinn á tengivagninum og láku um tíu þúsund lítrar sem í honum voru út. Búið er að opna veginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×