Lífið

Ný plata frá Láru væntanleg

Hin unga og hæfileikaríka söngkona, Lára Rúnarsdóttir, sendir frá sér sína aðra sólóplötu þann 26. maí næstkomandi. Ber platan heitið Þögn og kemur út hjá Senu undir merkjum Dennis Records.

Nú þegar hefur lagið Ókunnugi maður verið mikið spilað á öldum ljósvakans en Lára semur alla tónlistina og textana sjálf. Hún hefur úrvalsflokk hljóðfæraleikara sér til fulltingis; þá Börk Hrafn og Daða Birgissyni, Kristinn Snæ Agnarsson og Pétur Sigurðsson. Hinn heimsfrægi söngvari Damien Rice kemur fram í einu laginu með Láru sem ber heitið Why. Platan Þögn inniheldur tólf lög, þar af eru fjögur þeirra sungin á ensku. Þau eru allt frá því að vera ljúf og angurvær en svo má líka heyra kraftmikinn takt sem hristir upp í hlustandanum.

Þögn Láru Rúnarsdóttur ber því alls ekki nafn með rentu, því á henni eru yndislegir tónar með textum sem láta engan ósnortinn.

 







Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.