Innlent

Gæsluvarðhald stytt

Hæstiréttur stytti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð yfir karlmanni sem handtekinn var fyrir að hafa í félagi við tvo aðra veist að manni, sett hann í farangursgeymslu bifreiðar og farið með hann upp í Heiðmörk.

Þar var hann barinn svo hann hlaut lífshættulega áverka. Hann var svo skilinn eftir en það var hestamaður sem reið fram á hann. Maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 30. maí í Héraðsdómi Reykjaness en Hæstiréttur stytti það í dag til morgundagsins. Finnur Hæstiréttur að því að héraðsdómari hafi gert lýsingu málsatvika frá sækjanda að sinni án nokkurs fyrirvara.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×