Innlent

Játar að hafa framið vopnað rán í Apótekaranum

Liðlega fertugur karlmaður hefur játað að hafa framið vopnað rán í Apótekaranum við Smiðjuveg á fimmtudagsmorgun í síðustu viku. Hann ógnaði starfsfólki með exi og komst undan með talsvert af lyfjum. Lögregla handtók tvo menn í fyrrinótt og tvo í gærmorgun, og reyndist sá seki vera í hópnum. Þeim var öllum sleppt en mál ræningjans verður sent ákæruvaldinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×