Sport

Drogba minnkar muninn

John Arne Riise fagnar marki sínu.
John Arne Riise fagnar marki sínu. Getty
Norðmaðurinn John Arne Riise skoraði fyrsta markið í undanúrslitaleiknum gegn Chelsea með fallegu skoti úr aukaspyrnu á 21. mínútu. Liverpoolmenn mættu svo einbeittir í seinni hálfleikinn og á 54. mínútu bætti Louis Garcia við öðru marki fyrir Liverpool. Eftir að Liverpool höfðu svo virkað líklegri skoraði Didier Drogba fyrir Chelsea eftir mistök hjá Pepe Reina í marki Liverpool. Um tuttugu mínútur eru eftir af leiknum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×