Ekki við mann að eiga 21. apríl 2006 15:24
Erlingur Sigurðsson safnstjóri og fyrrverandi menntaskólakennari gerði sér lítið fyrir og gjörsigraði Mörð Árnason alþingismann og annálað gáfumenni í þriðju viðureign 8 manna úrslita Meistarans sem sýndur var á Stöð 2 í gærkvöldi. Erlingur hafði örugga forystu nær alla rimmuna og lokatölur urðu 18-8. Mörður tekur ósigrinum vel og gerir meira að segja grín að sjálfum sér í bráðskemmtilegu bloggi á heimasíðu sinni, www.mordur.is Mörður segir m.a.; "Hér var ekki við mann að eiga, sagði Helgi Ólafsson eftir að hafa teflt við Kasparov í fyrsta sinn - og tapað. Svipað hugsaði ég eftir viðureignina í Meistaranum við Erling Sigurðsson frá Grænavatni. Hann reyndist í þættinum miklu fremri á flestum sviðum þessarar íþróttagreinar, kunni allskyns dulúðug fræði - einsog um lofttegundir í lotukerfinu - var taktískur í erfiðum ákvörðunum um að slá eða slá ekki í bjöllu þegar vafi lék á, sneggri í einföldustu spurningunum - og líka heppinn, einsog meistari þarf að vera. Það var ekki við mann að eiga. Og það hefði verið afar ósanngjarnt ef Erlingur hefði beðið lægri hlut eftir þetta allt saman þegar gæfan brást honum í lokin í peningaspurningunni þegar hann var búinn að vinna." Síðar segir Mörður; "Erlingur átti þetta skilið - en ég var ekki sérlega ánægður um kvöldið, hvorki með sjálfan mig né gang spurninganna. Sjö-núll var staðan þegar ég loksins náði stigi - og allt gekk á afturfótunum. Tók tvisvar áhættu og slóm í bjölluna áður en spurningin kom: Félagi Fats Domino annarsvegar sem ég vissi margt um - en spurningin var hvar hann átti heima. Núll stig, þótt ég vissi það líka - kallinn neitaði nefnilega að fara burt úr flóðunum í New Orleans. Og svo Bjartmar með séríosið - en þar þurfti að syngja fyrstu ljóðlínuna þar sem söguhetjan er fimm ára - sem Erlingur fór að sjálfsögðu létt með. Eftir þetta og níu-tíu stigum undir birtist svo gríski bókstafurinn pí á skjánum. - Núnú, þetta er pí, hugsa ég, - og um hvað ætlar hann að spurja? Logi spyr hvað þetta á skjánum tákni. - Ha, hvað píið táknar? Æ, hvernig var þetta aftur - radíusinn ... Og þá hringir Erlingur og svarar: „Pí." - Það var rétt, segir Logi, - pí. Og þá skildi ég að svarið við spurningunni um píið var pí. Allar bjargir bannaðar!" "....en ég átti svo að svara til um morgunþáttinn á FM 95,7 (eða var það 97,5?) sem aldrei hefur komist innum eyrun á mér. Ippó. Hann heitir Zúber, hef rekist á það óþyrmilega oft síðan þátturinn var tekinn upp, það er þarna þátturinn með fullnægingarstununum og allskonar unglingavitleysu. Það blasir við í auglýsingum í blöðunum og tilkynningum á netinu. Svali, Gassi, Sigga og Stína. Zúber. Og af hverju er ég í sjónvarpsþætti fyrir framan þjóðina mína elskulega og á að vita að þáttur á FM 75,9 heitir Zúber? Þetta var gaman samt, þessa tvo þætti, og mér finnst Meistarinn hafa tekist vel til hjá Loga og félögum. Spurningarnar eru þannig að allir eiga möguleika, í þættinum og heima í stofu, og þetta er oftast verulega spennandi af því lokakaflinn ræður úrslitum. Þetta er kannski fullmikil heppni og léttavigt, hugmynd að bæta þáttinn með sosum einu alvöru-sérsviði þar væru þungar spurningarnar um valið efni - en í heildina er þetta vel heppnuð blanda og mér líður vel að hafa verið einn af kandidötunum. Tók að vísu aðeins meira á taugarnar en ég hélt í upphafi ... Óska Erlingi til hamingju með verðskuldað sæti í undanúrslitunum og spái honum hér með í úrslitin - með Illuga sennilega í lokaþættinum - það verður mikið og lymskulegt taugastríð. Hlakka til. Blogg Marðar má lesa í heild hér
Meistarinn Mest lesið Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Lífið „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikil sorg“ Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Stefán Teitur á skeljarnar Lífið Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Lífið Joe Don Baker látinn Bíó og sjónvarp VÆB bræður á forsíðu BBC Lífið Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Bíó og sjónvarp Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Lífið Fleiri fréttir Vaktin: Seinna undankvöld Eurovision VÆB bræður á forsíðu BBC „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikil sorg“ Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Sjá meira