Illugi mætir aðjunktinum unga 13. apríl 2006 07:00
Um aðra viðureign 8 manna úrslitaIllugi Jökulsson fjölmiðlamaður og Snorri Sigurðsson líffræðiaðjunkt mætast í annari viðureign 8 manna úrslita í spurningaþættinum Meistaranum sem sýndur er á Stöð 2 í kvöld, fimmtudaginn 13. mars kl. 20:05 Snorri Sigurðsson24 ára gamall aðjúnkt í líffræði við Kennaraháskóla Íslands, mætir nú til leiks í þriðja sinnið. Í fyrstu umferð gerði hann sér lítið fyrir og lagði Sigurð Kára Kristjánsson alþingismann. Snorri varð svo fyrstur til að tryggja sér sæti í 8 manna úrslitum er hann lagði Önnu Pálu Sverrisdóttur í fyrstu viðureign 16 manna úrslita. Illugi Jökulsson Mætti til leiks í annarri umferð og lagði þar Ágúst Örn Gíslason í sveiflukenndri og eftirminnilegri viðureign. Ljóst má vera að Snorri og Illugi eru verðugir keppinautar og er ómögulegt um það að spá hvor þeirra verður annar til að tryggja sér sæti í 4 manna úrslitum. Í síðustu viku varð Jónas Örn Helgason, rösklega tvítugur verkfræðinemi, fyrstur til að tryggja sér sæti í 4 manna úrslitum Meistarans er hann lagði Steinþór A. Arnsteinsson í æsispennandi rimmu. Aðrar viðureignir í 4 manna úrslitum eru sem hér segir:Mörður Árnason - Erlingur Sigurðsson Inga Þóra Ingvarsdóttir - Kristján Guy Burgess Meistarinn hefur fengið geysigóðar viðtökur síðan hann hóf göngu sína um síðustu jól. Það staðfestist í dagbókarkönnun Gallup, sem birt var á dögunum, en þar kemur fram að þátturinn er orðinn næstvinsælasti þátturinn á Stöð 2 á eftir Idol-Stjörnuleit með 41% uppsafnað áhorf meðal ákrifenda Stöðvar 2 og 21% meðal allra sjónvarpsáhorfenda á aldrinum 12-80 ára. Einvígi upp á 5 milljónir krónaMarkmiðið með Meistaranum var að leiða saman til spennandi einvígis skörpustu menn og konur landsins; jafnt þau sem þegar eru orðin landsmönnum að góðu kunn fyrir frækna framgöngu í spurningakeppnum, sem og aðra sem til stendur að uppgötva, laða fram á sjónvarsviðið. Allir sem náð hafa 20 aldursárum áttu þess kost að taka þátt. Efnt var til inntökuprófs - "Meistaraprófs" - í nóvember á fjórum stöðum á landinu, í Reykjavík, Egilsstöðum, Akureyri og á Ísafirði og var þáttaka með mesta móti. Þeir hlutskörpustu í prófinu munu mæta til leiks í Meistaranum, ásamt nokkrum af nafntogaðri gáfumönnum og spurningahaukum lansins. Meistarinn á sér enga fyrirmyndir, er nýr og fjölbreyttur spurningaþáttur fyrir alla fjölskylduna, sem sameina mun allt það besta sem tíðkast hefur í vinsælum spurningaþáttum. Spennan verður í hávegum höfð og mun ekki einasta reyna á þekkingu keppenda heldur ekki síður kænsku þeirra og heppni. Spurningar eru almenns eðlis, um allt og ekkert, allt frá því að vera níþungar í að vera laufléttar. Reynir því ekki einasta á gáfur keppenda heldur ekki hvað síst á kænsku og heppni. Einn mikilvægasti liðurinn í keppninni er nefnilega sá að keppendur þurfa að velja flokka ýmist handa sér eða mótkeppanda sínum. Keppendur þurfa því að spreyta sig á flokkum sem mótkeppandi velur jafnt og hinum ýmsu mynd- og hljóðdæmum. Þurfi keppandi því að hafa heppnina sín megin og leika leikinn að kænsku til að reyna að koma andstæðingum sínum fyrir kattanef. Sá sem krýndur verður Meistarinn eftir að hafa lagt alla keppinauta sína í maður-á-mann útsláttarkeppni mun fá að launum 5 milljónir króna í beinhörðum peningum. Í fyrstu umferð sitja tíu manns hjá. Að fyrstu umferð lokinni þurfa þau sextán sem eftir standa að berjast upp á líf og dauða til að komast áfram í næstu umferð, rétt eins og um bikarkeppni sé að ræða. Meistarinn er á dagskrá Stöðvar 2 á fimmtudögum kl. 20:05 og endursýndur á laugardögum kl. 16:00 og mánudögum kl. 23:00. Hægt er að nálgast Meistarann og aðra íslenska þætti sem sýndir eru á Stöð 2, Sirkus, Sýn og NFS á Vísir VefTV visis.is. Einnig skal bent á vefsíðu þáttarins: www.visir.is/meistarinn Þar er hægt að nálgast allar upplýsingar um keppnina og keppendur, léttir spurningaleikir í boði og síðast en ekki síst þá bloggar Logi Bergmann reglulega um keppnina, spáir í spilin og greinir frá ýmsu kræsilegu sem ekki kemur fram í þáttunum sjálfum.
Meistarinn Mest lesið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Fleiri fréttir Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Sjá meira