Stefnt að sameiningu Apple-verslana á Norðurlöndum 10. apríl 2006 16:07
Öflun ehf., eigandi Apple-verslananna á Íslandi, í Danmörku og Svíþjóð, hefur gert yfirtökutilboð í norska fyrirtækið Office Line en nýverið eignaðist Öflun yfir 89,58% í fyrirtækinu. Markaðshlutdeild Office Line er umtalsverð á Norðurlöndum þar sem fyrirtækið rekur Apple-verslanir í Noregi, Svíþjóð, Danmörku og Finnlandi. Velta félagsins á síðasta ári var tæplega 5 milljarðar íslenskra króna, eða um 425 milljónir norskar krónur. Rekstrarhagnaður þess var tæpar 182 milljónir íslenskra króna, eða um 16 milljónir norskra. Félagið er skráð í Kauphöllinni í Ósló. Stefnt er að sameiningu Office Line og Öflunar og að því að taka Office Line af norskum hlutabréfamarkaði. Öflun rekur þrettán Apple-verslanir á Norðurlöndum m.a. í Reykjavík, Kaupmannahöfn, Ósló, Stokkhólmi og Helsinki. Gert er ráð fyrir að opna þrjár nýjar verslanir í vor og stefnt að auka sölu og þjónustu til fyrirtækja. Eftir sameininguna er áætlað að velta Öflunar verði um sjö milljarðar íslenskra króna á ári. Starfsmenn fyrirtækisins eru um tvö hundruð, þar af um tuttugu á Íslandi. Yfirstjórn félagsins mun hafa aðsetur hér á landi. Fyrirtækjaráðgjöf Glitnis sá um ráðgjöf og annaðist fjármögnun við kaupin. Þetta er fyrsta samstarfsverkefni fyrirtækjaráðgjafar Glitnis í Reykjavík og Glitnir Securities (áður Norse Securites).
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Svínum sleppt út í Saltvík Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Svínum sleppt út í Saltvík „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Sjá meira