Lokaviðureign 16 manna úrslita og Strákarnir keppa í Meistaranum 30. mars 2006 07:00
Inga Þóra Ingvarsdóttir og Friðbjörn Eiríkur Garðarsson mætast í síðustu viðureign 16 manna úrslita í spurningaþættinum Meistaranum sem sýndur er á stöð 2 í kvöld fimmtudaginn 30. mars kl. 20:05. Áður en viðureignin hefst ætla Strákarnir, hinir einu sönnu, að mætast í Meistaraslag. Þar keppa gömlu strákarnir á móti hinum nýju. Logi Bergmann mun sjálfur spyrja drengina spjörunum úr og verður fróðlegt að og gaman að fá úr því skorið hvorir vaða frekar vitinu - hinir gömlu strákar eða nýju. Ekki missa af Meistarastrákum kl. 19:35 Um lokaviðureign 16 manna úrslitaInga Þóra, sem er sagnfræðingur að mennt, var sú fyrsta til að tryggja sér sæti í 16 manna úrslitum er hún lagði Þorvald Þorvaldsson smið í fyrsta Meistaraþættinum sem sýndur var annan í jólum. Friðbjörn Eiríkur lögmaður vakti litlu síðri athygli þegar hann gerði sér lítið fyrir og sigraði sjálfan Stefán Pálsson, fyrrum Gettu betur- keppanda og dómara, í fyrstu umferð. Inga Þóra er eina konan sem eftir er í Meistaranum og verður spennandi að sjá hvort hún nær lengra í keppninni eða hvort Friðbjörn Eiríkur haldi áfram að koma á óvart með því að leggja af velli sterka andstæðinga. Síðasti þáttur var dæmalaus skemmtun. Þar fór Illugi Jökulsson á algjörum kostum en vegna æsispennandi fyrirkomulags þáttarins þá missti hann niður afgerandi forystu sína á endasprettinum og hafði aðeins nauman sigur að lokum á Ágústi Erlin Gíslasyni. Áður höfðu tryggt sér sæti í 8 liða úrslitum; Mörður Árnason sem lagði Stefán Halldórsson, Erlingur Sigurðsson sem lagði Ólínu Þorðvarðardóttur, Steinþór H. Arnsteinsson, sem lagði Björn Guðbrand Jónsson, Kristján Guy Burgess, sem lagði Sævar Helga Bragason, Jónas Örn Helgason, sem lagði Hauk Harðarson og Snorri Sigurðsson sem lagði Önnu Pálu Sverrisdóttur. Átta liða úrslit í Meistaranum hefjast svo með látum að viku liðinni og verður drátturinn kynntur sérstaklega þegar nær dregur. Meistarinn hefur fengið geysigóðar viðtökur síðan hann hóf göngu sína um síðustu jól. Það staðfestist í dagbókarkönnun Gallup, sem birt var á dögunum, en þar kemur fram að þátturinn er orðinn næstvinsælasti þátturinn á Stöð 2 á eftir Idol-Stjörnuleit með 41% uppsafnað áhorf meðal ákrifenda Stöðvar 2 og 21% meðal allra sjónvarpsáhorfenda á aldrinum 12-80 ára. Einvígi upp á 5 milljónir krónaMeistarinn er alvöru spurningaþáttur, "klassískur spurningaþátt," eins og stjórnandi þáttarins, Logi Bergmann hefur orðað það. Fréttaþulurinn Logi Bergmann er hreint enginn aukvisi þegar kemur að því að stýra spurningaþætti en hann var stjórnandi spurningakeppni framhaldsskólanna Gettu betur við góðan orðstír í sjö ár. Markmiðið með Meistaranum var að leiða saman til spennandi einvígis skörpustu menn og konur landsins; jafnt þau sem þegar eru orðin landsmönnum að góðu kunn fyrir frækna framgöngu í spurningakeppnum, sem og aðra sem til stendur að uppgötva, laða fram á sjónvarsviðið. Allir sem náð hafa 20 aldursárum áttu þess kost að taka þátt. Efnt var til inntökuprófs - "Meistaraprófs" - í nóvember á fjórum stöðum á landinu, í Reykjavík, Egilsstöðum, Akureyri og á Ísafirði og var þáttaka með mesta móti. Þeir hlutskörpustu í prófinu munu mæta til leiks í Meistaranum, ásamt nokkrum af nafntogaðri gáfumönnum og spurningahaukum landsins. Meistarinn á sér enga fyrirmyndir, er nýr og fjölbreyttur spurningaþáttur fyrir alla fjölskylduna, sem sameina mun allt það besta sem tíðkast hefur í vinsælum spurningaþáttum. Spennan verður í hávegum höfð og mun ekki einasta reyna á þekkingu keppenda heldur ekki síður kænsku þeirra og heppni. Spurningar eru almenns eðlis, um allt og ekkert, allt frá því að vera níþungar í að vera laufléttar. Reynir því ekki einasta á gáfur keppenda heldur ekki hvað síst á kænsku og heppni. Einn mikilvægasti liðurinn í keppninni er nefnilega sá að keppendur þurfa að velja flokka ýmist handa sér eða mótkeppanda sínum. Keppendur þurfa því að spreyta sig á flokkum sem mótkeppandi velur jafnt og hinum ýmsu mynd- og hljóðdæmum. Þurfi keppandi því að hafa heppnina sín megin og leika leikinn að kænsku til að reyna að koma andstæðingum sínum fyrir kattarnef. Sá sem krýndur verður Meistarinn eftir að hafa lagt alla keppinauta sína í maður-á-mann útsláttarkeppni mun fá að launum 5 milljónir króna í beinhörðum peningum. Í fyrstu umferð sitja tíu manns hjá. Að fyrstu umferð lokinni þurfa þau sextán sem eftir standa að berjast upp á líf og dauða til að komast áfram í næstu umferð, rétt eins og um bikarkeppni sé að ræða. Meistarinn er á dagskrá Stöðvar 2 á fimmtudögum kl. 20:05 og endursýndur á laugardögum kl. 16:00 og mánudögum kl. 23:00. Hægt er að nálgast Meistarann og aðra íslenska þætti sem sýndir eru á Stöð 2, Sirkus, Sýn og NFS á Vísir VefTV visis.is. Einnig skal bent á vefsíðu þáttarins: www.visir.is/meistarinn Þar er hægt að nálgast allar upplýsingar um keppnina og keppendur, léttir spurningaleikir í boði og síðast en ekki síst þá bloggar Logi Bergmann reglulega um keppnina, spáir í spilin og greinir frá ýmsu kræsilegu sem ekki kemur fram í þáttunum sjálfum.
Meistarinn Mest lesið Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Lífið Stefán Teitur á skeljarnar Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Lífið Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Bíó og sjónvarp Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Lífið Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið Lífið Fyrsta háhælahlaup Íslandssögunnar Lífið samstarf Fleiri fréttir Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Sjá meira