Lífið

Blaðamaðurinn snýr aftur og mætir nú umhverfisfræðingi

Steinþór mætir til leiks í annað sinn en hann komst áfram uppúr fyrstu umferð með því að gera sér lítið fyrir og leggja Erling Hansson framhaldsskólakennara. Viðureignin sú reyndist æsispennandi og réðust úrslit ekki fyrr en í bráðabana. Verður því spennandi að sjá hvernig hinn

21 árs gamli blaðamaður og fyrrum Gettu betur keppandi fyrir Borgarholtsskóla stendur sig gegn umhverfisfræðingnum Birni Guðbrandi, sem mætir til leiks í fyrsta sinn. Björn Guðbrandur sat hjá í fyrstu umferð en hann er 48 ára gamall og starfar sem framkvæmdastjóri samtakanna Gróður fyrir fólk í Landnámi Ingólfs. Sigurvegarinn verður sá fjórði sem tryggir sér þátttöku í átta manna úrslitum Meistarans.

Þeir sem hafa tryggt sér þátttökurétt í 8 manna úrslitum eru Kristján Guy

Burgess, sem lagði Sævar Helga Bragason í síðasta þætti, Jónas Örn

Helgason, sem lagði Hauk Harðarson og Snorri Sigurðsson sem lagði Önnu Pálu Sverrisdóttur.

Næstu viðureignir eru sem hér segir:Erlingur Sigurðsson - Ólína Þorvarðardóttir

Mörður Árnason - Stefán Halldórsson

Illugi Jökulsson - Ágúst Gíslason

Inga Þóra Ingvardóttir - Friðbjörn Garðarsson

Um Meistarann:Meistarinn hefur fengið geysigóðar viðtökur síðan hann hóf göngu sína um síðustu jól. Það staðfestist í dagbókarkönnun Gallup, sem birt var á

dögunum, en þar kemur fram að þátturinn er orðinn næstvinsælasti þátturinn á Stöð 2 á eftir Idol-Stjörnuleit með 41% uppsafnað áhorf meðal ákrifenda Stöðvar 2 og 21% meðal allra sjónvarpsáhorfenda á aldrinum 12-80 ára.

Meistarinn er á dagskrá Stöðvar 2 á fimmtudögum kl. 20:05 og endursýndur á laugardögum kl. 16:00 og mánudögum kl. 23:00.

Hægt er að nálgast Meistarann og aðra íslenska þætti sem sýndir eru á Stöð 2, Sirkus, Sýn og NFS á Vísir VefTV

Einnig skal bent á vefsíðu þáttarins: www.visir.is/meistarinn



Þar er hægt að nálgast allar upplýsingar um keppnina og keppendur, léttir spurningaleikir í boði og síðast en ekki síst þá bloggar Logi Bergmann reglulega um keppnina, spáir í spilin og greinir frá ýmsu kræsilegu sem ekki kemur fram í þáttunum sjálfum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.