Fyrningarfrestur lengdur 14. febrúar 2006 18:45
Fyrningarfrestur vegna kynferðisbrota gegn börnum verður lengdur til muna samkvæmt frumvarpi sem dómsmálaráðherra kynnti í ríkisstjórn í morgun. Í sama frumvarpi er ákveðið að fara ekki sænsku leiðina og gera það refisvert að kaupa vændi. Ráðherra kynnti drög að frumvarpi um endurskoðun laga um kynferðisbrot í morgun. Í frumvarpinu sem samið er af Ragnheiði Bragadóttur, lagaprófessor við Háskóla Íslands er reynt að auka réttarvernd þolenda kynferðisbrota. Meðal nýmæla í frumvarpinu er að komið er til móts við það sjónarmið að kynferðisbrot gegn börnum eigi ekki að fyrnast með sama hætti og önnur brot. Ekki er gengið svo langt að afnema fyrninguna að öllu leyti en með lagabreytingum er fyrningartíminn lengdur úr fimm árum í tíu, frá því sem nú er og byrja brotin ekki að fyrnast fyrr en barnið er orðið átján ára í stað fjórtán ára í núgildandi lögum. Refsing fyrir kynferðisbrot gegn börnum yngri en fjórtán ára verða þyngd til muna. Refsingin getur nú orðið sú sama og fyrir nauðgun eða fangelsi allt að sextán árum. Það er einnig lagt til að breyta lögum um vændi. Felld verða úr gildi lög sem banna vændi sér til framfærslu, sem talin eru byggjast á úreltu sjónarmiði. Þess í stað verður ólöglegt að bjóða fram, miðla eða óska eftir kynmökum með opinberum auglýsingum. Nokkuð er rætt um "sænsku leiðina" í greinagerð með frumvarpsdrögunum - það er, að gera það refsivert að kaupa kynlífsþjónustu. Það er meðal annars talið mæla gegn því að fara þessa leið að ekki sé komin nægjanleg reynsla á hana í Svíþjóð Það sé því ekki tímabært að lögfesta slíkt ákvæði hér á landi.
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Innlent Fleiri fréttir Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Sjá meira