Ókeypis hádegismatur ella verði stéttaskipting 3. febrúar 2006 22:52 Svandís Svavarsdóttir.
Bjóða þarf grunnskólabörnum upp á ókeypis hádegismat til að koma í veg fyrir stéttaskiptingu að mati leiðtoga Vinstri grænna í borgarstjórnarkosningunum í vor. Svandís Svavarsdóttir sem mun leiða Vinstri græna í borgarstjórnarkosningum í vor hefur áhyggjur af því að ekki hafi allir foreldrar efni á því að kaupa hádegismat í grunnskólum borgarinnar fyrir börnin sín. Svandís segir að sér finnist það vera stór spurning þegar að það lítur út fyrir að þó nokkur hluti barna í Reykjavík nýti sér ekki hádegismat sem boðinn er í skólunum vegna efnahags og að það hljóti að vera mjög alvarlegur hlutur. Vegna þess að máltíðin og skólamáltíðin hljóti að vera sá mikilvægi viðburður í skóladeginum sem allt snýst í kringum og þar sem krakkarnir geti setið saman og spjallað saman, fyrir utan það að borða og njóta matarins. Því sé það náttúrulega óþolandi ef einhver fer á mis við þennan hlut bara vegna efnahags. Spurð að því hvort það sé ekki möguleiki að matvendni frekar en efnahagur ráði því að börn borði ekki matinn sem boðið er upp á í skólanum segir Svandís að það séu örugglega mjög margar ástæður fyrir því. En hins vegar þá sé það þannig að þó það sé bara einhver hluti af þessum krökkum sem ekki nýti sér matinn, þá geri það einhverjir vegna fátæktar.Segir hún staðfestingu hafa fengist á þeim grun frá skólastjóra Fellaskóla sem telji að það séu fullar líkur á því að þetta sé ein meginástæðan. Það sem þurfi því að gera er að bjóða ókeypis hádegismat í grunnskólum borgarinnar. Það sé risastórt verkefni sem þurfi að ráðast í. Svandís vill ekki láta staðar numið við hádegismatinn, heldur vill hún líka að eitthvað verði gert í misskiptingu tómstunda. Segir hún að sjálfsagt sé eitthvað hægt að gera eitthvað í þessum mun og að þarna greini að vinstrimenn og þá sem aðhyllast meira markaðshyggjuna og segja að hver og einn eigi að borga fyrir sig það sem hann hefur efni á fyrir sig og sín börn. Vinstri grænir segi að þetta eigi að fjármagna úr sameiginlegum sjóðum, vegna þess að börnin séu á ábyrgð borgarinnar. Börnin séu ekki bara á ábyrgð sinna foreldra vegna þess að þau þurfi á okkur öllum að halda. Það þurfi meira en eina fjölskyldu til að ala upp barn.
Fréttir Innlent Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Sjá meira