Innlent

Ferðist langar leiðir í ökunám

Þétt umferð í Reykjavík á vetrardegi.
Þétt umferð í Reykjavík á vetrardegi.

Fjöldi ökunema þarf að ferðast tugi og jafnvel hundruð kílómetra til að afla sér þjálfunar sem sett verður sem skilyrði fyrir veitingu ökuskírteinis taki ný reglugerð um ökunám gildi óbreytt.

Samgönguráðuneytið hefur óskað eftir umsögnum við nýrri reglugerð þar sem nýtt skilyrði er sett fyrir veitingu ökuskírteinis. Samkvæmt því þurfa allir sem fá ökuskírteini eftir fyrsta janúar 2009 að hafa lokið námi á æfingasvæði þar sem æfður er akstur við erfiðar aðstæður svo sem í hálku og á malarvegum.

Guðbrandur Bogason, formaður Ökukennarafélags Íslands, fagnar fyrirhugaðri breytingu. Hann segir ökukennara hafa barist fyrir þessu í tvo áratugi og telji mikið framfaramál í ökukennslu. Með þessu verði ökunemum kennt mun betur en áður að þekkja, forðast og takast á við erfiðar aðstæður, svo sem hálku og akstur á malarvegum.

Gert er ráð fyrir að einkaaðilar sjái um að koma upp æfingasvæðunum sem skulu afmörkuð og með ákveðnum æfingabrautum. Kostnaður við slíkt er nokkur og er ekki gert ráð fyrir að slík svæði verði sett upp nema á fáeinum stöðum á landinu, kannski tveimur eða þremur. Það þýðir ef af verður að fjöldi ökunema á landsbyggðinni þarf að fara langar leiðir til að fara í gegnum hluta af ökunámi sínum. Ökukennarar á landsbyggðinni sem rætt var við í morgun segja þetta kalla á mikil ferðalög og kostnaðarauka nema nemendum takist að samtvinna ferðalög vegna náms á ökusvæðum við önnur ferðalög sín.

Guðbrandur segir að þar sem flestir ökunemar geti fengið að hefja nám allt að ári áður en þeir verða sautján ára ættu flestir eða allir að geta sameinað ferð á akstursþjálfunarsvæði annarri ferð, hvort semer á höfuðborgarsvæðinu eða annars staðar. Því þurfi ekki að hljótast svo mikil ferðalög og kostnaður af breytingunni, nema auðvitað ef fólk eigi aldrei leið til borgarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×