Ferðist langar leiðir í ökunám 2. febrúar 2006 12:45 Þétt umferð í Reykjavík á vetrardegi.
Fjöldi ökunema þarf að ferðast tugi og jafnvel hundruð kílómetra til að afla sér þjálfunar sem sett verður sem skilyrði fyrir veitingu ökuskírteinis taki ný reglugerð um ökunám gildi óbreytt. Samgönguráðuneytið hefur óskað eftir umsögnum við nýrri reglugerð þar sem nýtt skilyrði er sett fyrir veitingu ökuskírteinis. Samkvæmt því þurfa allir sem fá ökuskírteini eftir fyrsta janúar 2009 að hafa lokið námi á æfingasvæði þar sem æfður er akstur við erfiðar aðstæður svo sem í hálku og á malarvegum. Guðbrandur Bogason, formaður Ökukennarafélags Íslands, fagnar fyrirhugaðri breytingu. Hann segir ökukennara hafa barist fyrir þessu í tvo áratugi og telji mikið framfaramál í ökukennslu. Með þessu verði ökunemum kennt mun betur en áður að þekkja, forðast og takast á við erfiðar aðstæður, svo sem hálku og akstur á malarvegum. Gert er ráð fyrir að einkaaðilar sjái um að koma upp æfingasvæðunum sem skulu afmörkuð og með ákveðnum æfingabrautum. Kostnaður við slíkt er nokkur og er ekki gert ráð fyrir að slík svæði verði sett upp nema á fáeinum stöðum á landinu, kannski tveimur eða þremur. Það þýðir ef af verður að fjöldi ökunema á landsbyggðinni þarf að fara langar leiðir til að fara í gegnum hluta af ökunámi sínum. Ökukennarar á landsbyggðinni sem rætt var við í morgun segja þetta kalla á mikil ferðalög og kostnaðarauka nema nemendum takist að samtvinna ferðalög vegna náms á ökusvæðum við önnur ferðalög sín. Guðbrandur segir að þar sem flestir ökunemar geti fengið að hefja nám allt að ári áður en þeir verða sautján ára ættu flestir eða allir að geta sameinað ferð á akstursþjálfunarsvæði annarri ferð, hvort semer á höfuðborgarsvæðinu eða annars staðar. Því þurfi ekki að hljótast svo mikil ferðalög og kostnaður af breytingunni, nema auðvitað ef fólk eigi aldrei leið til borgarinnar.
Fréttir Innlent Mest lesið Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Erlent Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Enginn andvígur hvalveiðum Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Skordýr í súpu skólabarna Innlent Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Erlent Fleiri fréttir Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Sjá meira