Skólastjórinn mætir viðskiptafræðingnum 2. febrúar 2006 10:39
Í síðustu viðureign fyrstu umferðar í spurningaþættinum Meistaranum, sem sýndur verður á Stöð 2 í kvöld, mætast Helgi Árnason skólastjóri Rimaskóla í Grafarvogi og Haukur Harðarson viðskiptafræðingur. Í síðasta þætti kom Friðbjörn Eiríkur Garðarsson lögmaður flestum í opna skjöldu er hann gerði sér lítið fyrir og lagði Stefán Pálsson, sjálfan "Gettu betur-sérfræðinginn" fyrrum sigurvegara með MR og dómara í þeirri keppni til tveggja ára. Í fjórðu viðureign lagði Stefán Már Halldórsson deildarstjóri starfskjaradeildar hjá Landsvirkjun Gísla Tryggvasyni talsmann neytenda. Í þeirri þriðju lagði líffræðianjúnktinn Snorri Sigurðsson Sigurð Kára Kristjánsson alþingismann. Í annarri viðureign hafði Steinþór H. Arnsteinsson blaðamaður betur en Erlingur Hansson framhaldsskólakennnari og í fyrstu viðureigninni lagði Inga Þóra Ingvadóttir sagnfræðingur Þorvald Þorvaldsson smið. Meistarinn er nýr alíslenskur spurningaþáttur sem hóf göngu sína annan í jólum og hefur farið geysivel af stað. Þátturinn hefur þegar vakið mikið umtal í fjölmiðlum enda eiga eftir að etja þar kappi margir af helstu spurningahaukum þjóðarinnar og verður því úr skorið hver sé í raun og reynd Íslandsmeistari í spurningakeppnum, hinn eini og sanni Meistari. Helgi ÁrnasonHelgi starfar sem skólastjóri Rimaskóla í Grafarvogi. Helgi er stúdent frá MR 1979 og tók kennarapróf frá Kennaraháskóla Íslands 1979. Hann stendur á fimmtugu og helstu áhugamál hans eru íþróttir, félagsstörf og heimilisstörf. Sérsvið hans í vitneskju segir hann landafræði og Íslandssögu. Helgi hefur ekki mikla reynslu af opinberum spurningakeppnum en segist liðtækur í öllum spurningaspilum; "sérstaklega ef konan eða börnin mín eru með mér í liði." Haukur HarðarsonHaukur er viðskiptafræðingur að mennt og er meðeigandi bókhaldsstofunnar Bókarar ehf. í Hamraborg í Kópavogi. Haukur er 47 ára gamall og helstu áhugamál hans eru að eyða tíma með og gera eitthvað með börnum sínum. Haukur gefur lítið upp um sérsvið sín en hann hefur einu sinni áður tekið þátt í spurningakeppni í sjónvarpi; þegar hann tók þátt í "Viltu vinna milljón" haustið 2002. Vefur Meistarans
Meistarinn Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Fleiri fréttir Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Sjá meira