Innlent

Veikur blettur á bönkunum hve þeir reiða sig á erlent lánsfé

Það er veikur blettur á íslenskum bönkum hve mjög þeir reiða sig á erlent lánsfé og hversu ónenjulega náin og óheilbrigð eignatengsl fjárfesta og fyrirtækja eru hér á landi, segir meðal annars í skýrslu greiningarfyrirtækjanna Barclays og Capital og Credit Sights, sem Morgunblaðið greinir frá.

Það geri bankana viðkvæma fyrir sveiflum á hlutabréfamarkaði og bent er á að arðsemi eiginfjár KB banka og Landsbanka fyrir skatta lækki úr 30 prósentum niður í 21 þegar gengishagnaður af hlutabréfum hafi verið tekinn frá. Þá er bent á í skýrlsunni að þrátt fyrir gott lánshæfismat íslensku bankanna nægi það ekki til að viðhalda trausti lánardrottna þurfi þeir nú að leita lengra en áður eftir lánsfé, eða til Asíu og Bandaríkjanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×