Styðja biskup Íslands 20. janúar 2006 09:15
Samvinnuhópur tuttugu kristinna trúfélaga og nítján einstaklinga hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem lýst er yfir stuðningi við Biskup Íslands og harmað fráhvarf kristinna siðferðisgilda sem ríkisstjórn Íslands sýnir með frumvarpi til laga um réttarstöðu samkynhneigðra. Í yfirlýsingunni segir að hjónaband sé sáttmáli á milli einnar konu og eins karls og minnt er á rétt barns til að þekkja báða foreldra sína . Yfirlýsingin er svohljóðandi: "Eftirfarandi yfirlýsing samvinnuhóps margra kristinna trúarsamfélaga vegna stjórnarfrumvarps um málefni samkynhneigðra verður send hinu háa Alþingi. Yfirlýsing samvinnuhóps margra kristinna trúarsamfélaga vegna stjórnarfrumvarps um málefni samkynhneigðra Við undirrituð lýsum eindregnum stuðningi við biskup Íslands, þegar hann segir að hjónaband sé sáttmáli milli eins karls og einnar konu, og teljum að nú beri að standa vörð um hina upprunalegu fjölskyldumynd og velferð fjölskyldna og barna í íslensku samfélagi. Um leið hörmum við það fráhvarf frá kristnum siðferðisgildum sem ríkistjórn Íslands sýnir með frumvarpi til laga um réttarstöðu samkynhneigðra. Frá því að þjóðin gerðist kristin, hefur hún haft fyrrnefnd siðferðisgildi sem grundvallarviðmiðun í löggjöf landsins. Að lögleiða aðra skipan er fráhvarf frá skíru og kláru boði Heilagrar ritningar og í andstöðu við siðfræði kristinnar kirkju í heild sinni. Með tilvísun til þeirra greina frumvarpsins sem fjalla um ættleiðingar barna til para í staðfestri samvist og tæknifrjóvgun hjá konum í staðfestri samvist, þá teljum við í ljósi kristinnar grundvallarafstöðu okkar hvort tveggja vera fráleitt. Við teljum að réttur barna sé skertur með nefndu frumvarpi og samband barns við föður og móður ekki virt. Við minnum á að samkvæmt upphafsgrein Barnalaganna, nr. 76/2003, á barn rétt á að þekkja báða foreldra sína. Breytingartillögu við frumvarpið, sem felur í sér heimild forstöðumanna trúfélaga til hjúskaparvígslu tveggja einstaklinga af sama kyni, teljum við fráleita og höfnum henni alfarið. Rök okkar eru þau sömu og áður: Hin boðaða löggjöf fer þvert gegn kristinni kenningu um hjónabandið og samband foreldra og barns. Þau trúfélög og trúarhópar sem standa að þessu (og gera það í heild) eru: Hvítasunnukirkjan Fíladelfía, Reykjavík, Hvítasunnukirkjan í Keflavík, Hvítasunnukirkjan á Akureyri, Hvítasunnukirkjan Betel, Vestmannaeyjum, Hvítasunnukirkjan Salem, Ísafirði, Hvítasunnukirkjan Selfossi, Hvítasunnukirkjan Kirkjulækjarkoti, Íslenska Kristskirkjan, Grafarvogi, Fríkirkjan Kefas, Krossinn í Kópavogi, Fríkirkjan Vegurinn, Betanía, kristið samfélag, Hjálpræðisherinn á Íslandi, Sjónarhæðarsöfnuður, Akureyri, Akurinn, kristið samfélag, Kópavogi, Samfélag trúaðra, Reykjavík, Samfélagið Hörgshlíð 12, Vinyard, kristið samfélag, Reykjavík, Aðventkirkjan á Íslandi, Rússneska rétttrúnaðarkirkjan: Söfnuður Moskvu-Patríarkatsins í Reykjavík (Ísland - prestur Timur Zolotuskiy) Og þar að auki einstaklingar í (öðrum) trúfélögum: Anton Ingimarsson, kt 1108595709, verslunarstjóri. Dr. Arngrímur Jónsson, fyrrv. sóknarprestur. Eva S. Einarsdóttir, ljósmóðir í Kópavogi. Flóki Kristinsson, sóknarprestur á Hvanneyri. Guðlaugur L. Aðalsteinsson, kt 2611602779, og k.h. Kolbrún B. Jónsdóttir Guðmundur Óli Ólafsson, fyrrv. prófastur í Skálholti. Guðmundur Pálsson, sérfræðingur í heimilislækningum. Gústaf Níelsson, sagnfræðingur í Reykjavík, og k.h. Bergþóra Sigurbjörnsdóttir, forstjóri. Halldór S. Gröndal, fyrrv. sóknarprestur. Jakob Rolland, kanslari kaþólsku kirkjunnar. Jón Oddgeir Guðmundsson, Akureyri. Jón Valur Jensson, guðfræðingur í Reykjavík. Jón Rafn Jóhannsson OCDS (Karmelítareglunni, kaþ. kirkjunni) Laufey Jensdóttir, 210524-3989, húsmóðir. Lilja Kristjánsdóttir húsmóðir, fyrrv. kennari. Dr. Loftur R. Gissurarson, gæðastjóri OR, Mosfellsbæ. Patrick Breen, sóknarprestur kaþólskra á Akureyri."
Fréttir Innlent Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Bilun hjá Teya olli löngum röðum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ Innlent Fleiri fréttir Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Sjá meira