Úthlutað fyrir lok umsóknarfrests 10. janúar 2006 20:14
Umhverfisráðherra hefur úthlutað Náttúrufræðistofnun 6,6 milljónum króna úr veiðikortasjóði þrátt fyrir að umsóknafrestur um styrki úr sjóðnum sé ekki runninn út. Inn á vef Umhverfisráðuneytisins er auglýst eftir umsóknum um styrki úr veiðikortastjóði til rannsókna á stofnun villtra fugla og spendýra. Leyfisgjald sem veiðimenn greiða rennur í veiðikortasjóð og á að nota hann til rannsókna og til að reka veiðistjórnunarsvið Umhverfisstofun. Umhverfisráðherra á að úthluta úr sjóðnum að fengnum tillögum Umhverfisstofnunar. Umsóknafrestur rennur út 15. febrúar næstkomandi en þrátt fyrir það úthlutaði ráðherra 6,6 milljónum úr sjóðnum til Náttúrufræðistofnunar þann 30. desember síðastliðinn. En það er þvert á álit umboðsmanns Alþingis frá árinu 2004 þar sem hann gangrýndi fyrri úthlutun ráðuneytisins úr veiðikortasjóði til Náttúrfræðistofnunar. Í álitinu kemur fram að rétt sé að Umhverfisstofnun auglýsi eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum og geri tillögur til ráðuneytisins. Nú eru um sex milljónir eftir til úthlutunar í stað um tólf milljóna og þeir sem eru að skrifa umsóknir núna eða eiga eftir að gera það eiga ekki jafna möguleika á við Náttúrfræðistofnun að fá fé úr sjóðnum. "Það hljóta að vera mistök. Ég get ekki betur séð en að menn verði að endurskoða þessa ákvörðun," segir Sigmar B. Hauksson, formaður Skotvís. "Við höfum barist fyrir því í hartnær níu ár að það sé auglýst og að menn sæki um í sjóðinn. Ég veit ekki betur en að núverandi umhverfisráðherra og sá fyrri hafi verið sömu skoðunar. Þessi úthlutun á að vera gegnsæ." Ingimar Sigðursson, skrifstofustjóri í Umhverfisráðuneytinu, segir ákvörðun um úthlutun á fénu byggja á áætlun sem ráðuneytið samþykkti árið 2002 og tekur til áranna 2003-2007. Úthlutunina segir hann vera hluta af kostnaði við rjúpnarannsóknaverkefni og sé raunverulega til þess að mæta þeim kostnaði sem ekki er mætt í fjárveitingum til stofnunarinnar. Hann segir málið hafa verið afgreitt í framhaldi af umsögn Umhverfisstofnunar.
Fréttir Innlent Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Fleiri fréttir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Sjá meira