Þrír nýir þættir hefja göngu sína á morgun 10. janúar 2006 10:29
Dagskrá sjónvarpsstöðvarinnar Sirkus verður nú betri og ferskari með hverjum deginum sem líður. Á morgun, miðvikudaginn 11. janúar, hefja göngu sína þrír nýir þættir sem sjónvarpsstöðvar hafa slegist um, enda með vinsælustu þáttum sem sýndir eru í sjónvarpi í Bandaríkjunum og reyndar víðar, nú um mundir. Þættirnir eru: MY NAME IS EARL - vinsælasti og jafnframt rómaðasti nýi gamanþátturinn í Bandaríkjunum, með Jason Lee í aðalhlutverki. INVASION - að flestra mati talinn sterkasti sci-fi þátturinn af þeim fjölmörgu sem teknir voru til sýninga í haust. THE WAR AT HOME - drepfyndnir grínþættir um foreldra sem eiga í mesta basli með að hemja unglingana sína. My Name Is EarlÞað er alveg óhætt að fullyrða að sá gamanþáttur sem vakið hefur mesta athygli af öllum þeim nýju þáttum sem hófu göngu sína síðasta haust í Bandaríkjunum sé My Name Is Earl. Þátturinn hefur ekki einasta fengið einna mesta áhorfið af öllum nýjustu þáttunum heldur hefur hann líka hlotið einróma lof sjónvarpsrýna, sem hampa honum sem líklegasta þættinum til að fylla hið gapandi skarð sem Seinfeld, Friends og Frasier hafa óneitanlega skilið eftir sig. Þátturinn er búinn til af einum aðalframleiðanda Family Guy og með hlutverk Earls fer Jason Lee sem er hvað kunnastur fyrir að hafa leikið í mörgum mynda Kevins Smiths. Earl er smáglæpamaður sem dettur óvænt í lukkupottinn og vinnur háa fjárhæð í lottóinu. Nokkrum sekúndum eftir að hafa unnið peningana verður hann fyrir bíl og týnir miðanum. Þar sem hann liggur á spítala og jafnar sig sannfærist hann um að hann hafi týnt miðanum vegna alls þess slæma sem hann hafi gert um ævina. Staðráðinn í því að verða betri maður, ákveður Earl að búa til lista yfir alla þá slæmu hluti sem hann hefur gert af sér og ætlar að bæta fyrir hvert eitt og einasta atriði sem fór á listann. Það reynist þó aðeins erfiðara en hann hélt í fyrstu en Earl gefst ekki upp svo auðveldlega. Þessir frábæru grínþættir slógu svo sannarlega í gegn í Bandaríkjunum og ekkert lát virðist vera á vinsældum þeirra þar. Og nú er komið að Íslendingum að fá að njóta þeirra á Sirkus. Fylgstu með þáttunum sem allir eru að tala um!MY NAME IS EARL er frumsýndur á Sirkus alla miðvikudaga kl. 21:00. Endurtekinn á sunnud. kl. 21:00 og þriðjud. kl.19:30.InvasionSmábær í Suður-Flórída lendir í miðjunni á heiftarlegum fellibyl sem leggur bæinn í rúst. Eftir storminn hefst röð undarlegra atvika sem lögreglustjóri staðarins ákveður að kanna nánar. Kemur þá ýmislegt dularfullt í ljós sem engar rökréttar skýringar virðast á. Magnaðir þættir í anda Lost og X-Files.THE WAR AT HOME er frumsýndur á Sirkus alla miðvikudag kl. 21:30. Endurtekinn á sunnud. kl. 20:30 og miðvikud. kl. 19:30. The War At HomeFrábærir gamanþættir með Michael Rapaport um foreldrana Dave og Vicky sem á hverjum degi takast á við það vandasama hlutverk að ala upp unglingana sína sem eru allt annað en auðveldir í umgengni. Þau berjast við að halda þeim á beinu brautinni, en allt það sem unglingarnir hugsa um að gera og eru skammaðir fyrir, það hafa Dave og Vicky sjálf gert… tvisvar. Ekki missa af þessum bráðfyndnu þáttum.INVASION er frumsýndur á Sirkus alla miðvikudaga kl. 22:00. Endurtekinn á fimmtud. kl. 23:00 og sunnud. kl. 21:30.
Menning Mest lesið „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Lífið „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ Lífið „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Lífið Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd Lífið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Lífið „Kjóllinn markaði nýtt upphaf í mínu lífi“ Tíska og hönnun Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Lífið Lét drauminn rætast á Ítalíu Lífið Lofsyngja tónleika Laufeyjar í Kína Tónlist Fleiri fréttir „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Sjá meira