Lífið

Palladómar um myndir og leikara

"Ég byrjaði á þessu árið 2001 á strik.is sem er horfið til feðranna. Eiginlega til að skemmta sjálfum mér yfir óskarsverðlaunaafhendingunni og jafnframt er þetta andóf gegn hinum íslenska þul sem gjammar yfir allt og alla með innihaldslausa fróðleiksmola um myndirnar og stjörnurnar," segir Þórarinn Þórarinsson, blaðamaður

á Fréttablaðinu og kvikmyndagagnrýnandi.

Þórarinn ætlar sér að lýsa óskarsverðlaunaafhendingunni á visir.is en Óskarinn er á dagskrá Stöðvar 2 aðfaranótt mánudags. Þórarinn hikar hvergi við að lýsa sér sem bíónörd. Og eftir að strik.is lagði upp laupana hélt hann uppteknum hætti á síðu sinni, badabing.is, en hún liggur nú tímabundið niðri. Þröstur Emilsson fékk því Þórarinn til að hafa lyklaborðið við hendina þegar óskarsverðlaunaafhendingin fer fram.

"Ég ætla að sýna fram á og sanna að ef endilega þarf að vera með íslenskan kjaftavaðal yfir þessari seremóníu þá megi gera það skemmtilega," segir Þórarinn sem lengi hefur haft brennandi áhuga á kvikmyndum og öllu þeim tengdum.

Hann hefur sótt fjölda hátíða, meðal annars var hann á vegum Fréttablaðsins í för með Friðriki Þór Friðrikssyni á Cannes árið 2005. Og stefnir á óskarsverðlaunaafhendinguna ef Fréttablaðið splæsir.

"Þó að óskarsverðlaunin séu að öllu leyti yfirgengilega amerísk og hallærisleg hátíð, (þó ekki eins aumkunarverð og Edduverðlaunin), þá er þetta engu að síður bíónördanna. Þetta er álíka okkur fyrir og EM og HM í fótbolta. Stærsti viðburðurinn í þessum geira."

Þórarinn telur sig til frumkvöðla með netlýsingu sinni. „Og þótt ég sé þekktur fyrir að skrifa fágaðan fallegan stíl þá leyfi ég mér, í lýsingum, bæði að sletta og blóta. Ég hika ekkert við að halda með tilteknum myndum og leikurum. Sumir leikarar fara taugarnar á mér og þá fá þeir palladóma."

Þórarinn mælir eindregið því að menn skrúfi niður í Ívari Guðmundssyni, sem hefur haft höndum að lýsa Óskarnum undanfarin ár, og verði með tölvuna opna.



jakob@dv.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.