Passið ykkur á flugeldunum 30. desember 2006 20:00
Annríki hefur verið á slysavarðstofunni í Fossvogi í gær og í dag. Þrjú flugeldaslys urðu í Reykjavík í gærkvöldi en ekkert í dag enn sem komið er. Sigrún Þorsteinsdóttir hjá Landsbjörgu segir góða vísu greinilega aldrei of oft kveðna, því slysin haldi alltaf áfram að gerast, þrátt fyrir áróður lækna og flugeldasala.Hún segir hlífðargleraugun mjög mikilvæg, ekki eingöngu fyrir þann sem er að skjóta, heldur einnig fyrir þá sem fylgjast með. Höndin skal vera útrétt og ef flugeldurinn tekur ekki við sér á ekki að reyna til þrautar heldur hella á hann vatni og skila honum á flugeldasölustaði.Efnið í fatnaðinum skiptir líka miklu máli. Gerviefni eins og flís og nælon fuðra upp og valda slæmum brunasárum, því er mun betra að vera í ullarvettlingum eða skinnhönskum og útifatnaður úr næloni er skaðræði.En ekki eru allir sáttir við flugeldaskothríð Íslendinga og íbúi einn í Árbæ kvartar mjög undan nábýlinu við flugeldasölu í Rofabæ. Sigrún Reynisdóttir býr í Hraunbænum og segir mengun og ónæði óþolandi. Hún er auk þess astmasjúklingur og reynir að loka að sér gluggum en segir flugeldareykinn smjúga alls staðar inn.Stórbruni hjá Hjálparsveit skáta í Hveragerði á gamlársdag í fyrra er víti til varnaðar og til marks um hversu illa getur farið þegar flugeldar eru annars vegar. Þá var verið að tengja flugeldasýningu þegar eldurinn blossaði upp en barst sem betur fer ekki í flugeldasöluna og lagerinn sem var í hinum enda hússins. Nýtt hús er enn ekki risið en flugeldasalan er samt í fullum gangi.Hjálparsveitin verður þó með flugeldasýningu nú á gamlárskvöld en miklar varúðarráðstafanir hafa verið gerðar. Nú verður flugeldasýningin tengd í öðru húsi en flugeldasalan er og það hefur verið tæmt og séreinangrað. Allir sem vinna við flugeldasýninguna verða þar að auki í bómullargöllum og allar tengingar verða límdar niður, þar sem það var heftibyssa sem varð völd að brunanum í fyrra.
Mest lesið Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Innlent Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Innlent Lilja mætt aftur á Alþingi Innlent Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Innlent Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Erlent Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Innlent Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Erlent Fylgstu með óveðrinu ganga yfir Veður Orbán sakaður um sprengjutilræði Erlent Fleiri fréttir Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Sjá meira