Lífið

Ham á Nasa

sigurjón kjartansson Rokksveitin Ham heldur tónleika á Nasa fimmtudaginn 29. júní.
sigurjón kjartansson Rokksveitin Ham heldur tónleika á Nasa fimmtudaginn 29. júní. MYND/Heiða
Rokksveitin Ham heldur tónleika á Nasa fimmtudaginn 29. júní ásamt hljómsveitinni 9/11"s. Ham lagðist í dvala eftir tónleika í Tunglinu árið 1994. Eftir það kom sveitin aftur saman þegar hún hitaði upp fyrir Rammstein í Laugardalshöllinni fyrir fimm árum auk þess sem hún spilaði á Hætta-tónleikunum í Höllinni þann 7. janúar síðastliðinn.

Á tónleikunum á Nasa mun sveitin spila ný lög í bland við gömul. Miðasala á tónleikana hefst á fimmtudag kl. 10.00 á midi.is, í verslunum Skífunnar og í völdum BT-verslunum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.