Allir geta lært að syngja 13. júní 2006 06:00 Ingveldur Ýr Jónsdóttir, söngkona Kennir áhugasömum grunnatriði í söng, öndun og raddbeitingu. MYND/Heiða
Söngkonan Ingveldur Ýr hefur kennt ungum sem öldnum að syngja og beita rödd sinni rétt. Í sumar heldur hún námskeið fyrir unglinga og fullorðna þar sem jafnvel þeir sem hljóma eins og laglausir gaularar geta lært að syngja. Það er hægt að kenna öllum að syngja, segir Ingveldur Ýr. Fólk er misjafnlega næmt fyrir tónum - alveg eins og það er misjafnlega næmt fyrir litum. Þetta orð að vera falskur eða laglaus er dálítið misnotað. Það er til fólk sem man ekki tóna jafn vel og aðrir. Ingveldur útskýrir að á námskeiðunum sé kennd grunnbeiting raddarinnar í söng, öndun og farið yfir líkamsstöðu og raddæfingar auk þess sem kennd eru einföld sönglög. Þetta eru námskeið sem kenna heilbrigða raddbeitingu, þjálfa tóneyrað og gefa fólki innsýn í sönginn, segir hún. Ingveldur útskýrir að þegar fólk læri að beita röddinni rétt þá lagist oft söngröddin líka. Þetta er oft tengdara raddbeitingunni sjálfri heldur en tóneyranu. Við áttum okkur ekki á því að tónheyrnin er einn hluti af heilastöðvunum en ekki í eyranu sjálfu. Um leið og röddin og allt sem tengist önduninni lagast þá fer þetta oft að vinna með, segir Ingveldur og bendir á að þá blómstri oft einhver hæfileiki sem fólk vissi ekki að það hefði. Ingveldur hefur verið með námskeið hjá tómstundaskóla Mímis í nokkur ár auk þess að kenna raddbeitingu í fyrirtækjum og skólum víða um land. Unglinganámskeiðin eru ætluð aldurshópunum frá 12-15 ára og 16-19 ára og þar er lögð meiri áhersla á að vinna með framkomu líka. Þá notum við líka meira lög úr söngleikjum og kvikmyndum, segir Ingveldur. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni, songstudio.ehf.is.
Menning Mest lesið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Lífið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Lífið Sambandi Cox og McDaid lokið Lífið Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Lífið Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Lífið Lofsyngja tónleika Laufeyjar í Kína Tónlist Sex íslenskir söngvarar ráðnir til Þjóðaróperunnar Menning „Kjóllinn markaði nýtt upphaf í mínu lífi“ Tíska og hönnun Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram Sjá meira