Innlent

Fatlaður maður fannst látinn í Sundhöll Selfoss

Fatlaður maður fannst látinn í Sundhöll Selfoss, þegar verið var að loka lauginni um níu-leytið á fimmtudagskvöld. Maðurinn var rúmlega fertugur heimamaður og fannst meðvitundarlaus í grunnu lauginni. Ekki er vitað hvernig hann lést, hvort um var að ræða drukknun, en að sögn lögreglunnar á Selfossi munu bráðabirgðaniðurstöður úr krufningu á mánudag væntanlega leiða það í ljós. Ekki er greint frá nafni mannsins að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×