Jón H.B. afneitar ótrúverðugleika 12. desember 2006 19:54
Jón H.B. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar, telur af og frá að yfirmenn embættis Ríkislögreglustjóra hafi gert sig ótrúverðuga með yfirlýsingum um sakborninga í Baugsmálinu. Fyrir ári þegar hugað var að endurákæru í Baugsmálinu fór það frá embætti ríkislögreglustjóra til ríkissakskóknara með þessum rökstuðningi Haraldar Johannessen.Það er hægt með rökum að halda því fram að ríkislögreglustjóraembættið sé orðið of flækt í þetta mál til þess að geta litið hlutlaust á þær ákvarðanir sem þarf að taka í málinu.Nú þegar skattamálið er til rannsóknar hjá embætti Haraldar halda Baugsmenn því fram að ríkislögreglusjóri hafi lýst sig og embættið vanhæft til að fara með rannsókn málinu. Því fer víðs fjarri segir yfirmaður Efnahagsbrotadeildar. Um allt annað mál sé að ræða.Lögmenn Baugsmanna héldu því fram í Héraðsdómi í gær að yfirmenn hjá embætti ríkislögreglustjóra hafi brotið gegn reglu um að sakborningar teljist saklausir uns sekt er sönnuð. Vísað var til þess að Haraldur Johannessen sagði í Blaðinu að skattamálinmuni fara fyrir dóm sem skattsvikamál.Jón H. B.snorrason sagði í sama fjölmiðli að allir væru jafnir hvort sem þeir afgreiddu kjötfars eða ekki og Arnar Jensson yfirlögregluþjónn talar skipulagða glæpahópa sem starfi í skjóli auðs í skrifum í grein um Baugsmálið sem birtist í nýverið í Morgunblaðinu.Væri hlutdrægni í málatilbúnaði ætti það að leiða til þess að sönnunarfærslan væri véfengd fyrir dómi, segir yfirmaður Efnahagsbrotadeildar og bætir við að fjölmiðlaufjöllun væri ekki stjórnað af embættinu.Í dómsal í gær hélt hann því fram að Blaðið hefði haft rangt eftir ríkislögreglustjóra, að eftir honum sjálfum hafi fjölmiðlar haft hluti sem hann hefði ekki búist við að sjá á prenti. Hann vill þó ekki meina að fjölmiðlafólk leggi forsvarsmenn embættis ríkislögreglustjóra í einelti.
Mest lesið Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Innlent Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Erlent Fleiri fréttir Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Sjá meira