Lífið

Deildarstjórinn lagði talsmann neytenda

Stefán Már Halldórsson deildarstjóri starfskjaradeildar hjá Landsvirkjun lagði Gísla Tryggvasyni talsmann neytenda í spurningaþættinum Meistaranum sem fram fór á Stöð 2 í kvöld.

Þessi fjórða viðureign fyrstu umferðar var tvísýn framan af en undir lokin tók Stefán Már afgerandi forystu og sigraði 14-0 eftir að Gísli hafði glatað öllum sínum stigum í síðasta lið keppninnar. Hinn 56 ára gamli félagi í karlakórnum Fóstbræðrum til 24 ára sýndi víðtæka þekkingu og nýttist áhugi hans á tónlistinni vel er hann fékk þrjú stig fyrir að svara rétt spurningunni hvaða djasssveit hefði upphaflega flutt standardinn "Take Five": Dave Brubeck Quartet. Stefán Már hefur nú tryggt sér þátttökurétt í annarri umferð Meistarans og þokast nær sigurlaununum, sem eru fimm milljónir króna í beinhörðum peningum.

Næsta viðureign verður háð að viku liðinni á Stöð 2, fimmtudaginn 26. janúar, en þá eigast við Stefán Pálsson, sagnfræðingur, dómari og sigurvegari úr Gettu betur og annálaður spurningahaukur og Friðbjörn Garðarsson héraðsdómslögmaður.

 

Bent skal á vefsíðu þáttarins hér á Vísi; www.visir.is/meistarinn. Þar er hægt að nálgast allar upplýsingar um keppnina og keppendur. Einnig skrifar Logi Bergmann Eiðsson stjórnandi þáttarins reglulega inn innihaldsríkar lýsingar á þáttunum, veitir áhugaverðar upplýsingar um það sem gerist bakvið tjöldin og spáir og spekúlerar í Meistaranum á léttan og beittan hátt.

 

Frekari upplýsingar um MeistarannMeistarinn er alvöru spurningaþáttur, "klassískur spurningaþátt," eins og stjórnandi þáttarins, Logi Bergmann hefur orðað það. Fréttaþulurinn Logi Bergmann er hreint enginn aukvisi þegar kemur að því að stýra spurningaþætti en hann var stjórnandi spurningakeppni framhaldsskólanna Gettu betur við góðan orðstír í sjö ár.

Meistarinn er öllum opinn. Markmiðið með þættinum var að leiða saman til spennandi einvígis skörpustu menn og konur landsins; jafnt þau sem þegar eru orðin landsmönnum að góðu kunn fyrir frækna framgöngu í spurningakeppnum, sem og aðra sem til stendur að uppgötva, laða fram á sjónvarsviðið. Allir sem náð hafa 20 aldursárum áttu þess kost að taka þátt. Efnt var til inntökuprófs - "Meistaraprófs" - í nóvember á fjórum stöðum á landinu, í Reykjavík, Egilsstöðum, Akureyri og á Ísafirði og var þáttaka með mesta móti. Þeir hlutskörpustu í prófinu munu mæta til leiks í Meistaranum, ásamt nokkrum af nafntogaðri gáfumönnum og spurningahaukum lansins.

Meistarinn á sér enga fyrirmyndir, er nýr og fjölbreyttur spurningaþáttur fyrir alla fjölskylduna, sem sameina mun allt það besta sem tíðkast hefur í vinsælum spurningaþáttum. Spennan verður í hávegum höfð og mun ekki einasta reyna á þekkingu keppenda heldur ekki síður kænsku þeirra og heppni. Spurningar eru almenns eðlis, um allt og ekkert, allt frá því að vera níþungar í að vera laufléttar. Reynir því ekki einasta á gáfur keppenda heldur ekki hvað síst á kænsku og heppni. Einn mikilvægasti liðurinn í keppninni er nefnilega sá að keppendur þurfa að velja flokka ýmist handa sér eða mótkeppanda sínum. Keppendur þurfa því að spreyta sig á flokkum sem mótkeppandi velur jafnt og hinum ýmsu mynd- og hljóðdæmum. Þurfi keppandi því að hafa heppnina sín megin og leika leikinn að kænsku til að reyna að koma andstæðingum sínum fyrir kattanef.

Sá sem krýndur verður Meistarinn eftir að hafa lagt alla keppinauta sína í maður-á-mann útsláttarkeppni mun fá að launum 5 milljónir króna í beinhörðum peningum. Í fyrstu umferð sitja tíu manns hjá. Að fyrstu umferð lokinni þurfa þau sextán sem eftir standa að berjast upp á líf og dauða til að komast áfram í næstu umferð, rétt eins og um bikarkeppni sé að ræða.

Meistarinn er á dagskrá á fimmtudögum kl. 20 og þátturinn er endursýndur á mánudögum kl. 22.55.

Hægt er að nálgast Meistarann og aðra íslenska þætti sem sýndir eru á Stöð 2, Sirkus, Sýn og NFS á Vísir VefTV.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.