Stutt síðan Samfylkingin beitti sér fyrir nýrri stóriðjuuppbyggingu 19. september 2006 18:04
Aðeins eru þrír mánuðir liðnir frá því að Samfylkingin beitti sér fyrir því innan Reykjavíkurborgar að Orkuveitan kæmi að frekari stóriðjuuppbyggingu innan tveggja ára. Í síðustu viku boðaði sami flokkur stóriðjustopp. Frambjóðendur flokksins í væntanlegum álversbyggðarlögum freista þess nú að útskýra hvernig barátta fyrir nýjum álverum samræmist hinni nýju stóriðjustefnu flokksins. Það var með stuðningi fulltrúa Samfylkingarinnar sem fulltrúar Orkuveitu Reykjavíkur og Alcan rituðu undir samkomulag í júnílok um orkukaup vegna stækkunar álversins í Straumsvík. Fulltrúi Samfylkingarinnar studdi einnig ákvörðun stjórnar Orkuveitunnar í marsmánuði, þótt hann sæti hjá í júnímánuði, um að ganga til viðræðna um orkusölu til álvers í Helguvík. Bæði verkefnin miða við að orkusala hefjist árið 2010, sem þýðir að framkvæmdir yrðu að hefjast innan tveggja ára. Það liggur því fyrir að Samfylkingin innan R-listans beitti sér fyrr á þessu ári fyrir frekari stóriðjuuppbyggingu, bæði í Straumsvík og Helugvík, en þessar ákvarðanir hafa leitt til þess að undirbúningur er kominn á fulla ferð við bæði verkefnin. Á blaðamannafundi Samfylkingarinnar í síðustu viku hvað svo við annan tón en þar var boðað að frekari stóriðjuframkvæmdum skyldi frestað, og formaður flokksins sagði að skuldbindingar gagnvart Kyoto leyfðu aðeins eitt álver til viðbótar hérlendis. Þingmaður flokksins af Suðurnesjum vill þó ekki hætta við álver í Helguvík. Jón Gunnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, segir að þegar skynsamlegt verði talið að ráðast í frekari stóriðjuframkvæmdir þá eigi Helugvík að vera inni í myndinni, eins og aðrir staðir. Samfylkingarmenn á Norðausturlandi ætla ekki að gefa eftir álver við Húsavík, eins og Björn Þorláksson, fréttamaður á Akureyri, komst að. Oddviti flokksins á Akureyri, Hermann Jón Tómasson, formaður bæjarráðs Akureyrar, telur að Samfylkingin eigi að ganga lengra og lýsa því yfir að ef pláss sé fyrir eitt álver til viðbótar þá eigi sú stóriðja að rísa á Norðurlandi. Byggðasjónarmið eigi að ráða.
Mest lesið Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent „Þetta er erfiður mánudagur“ Innlent Fleiri fréttir Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Sjá meira