Innlent

Útsýnisflug frá Ísafirði á Kárahnjúkasvæðið

Mynd/Vilhelm
Til stendur að fara í útsýnisflugi yfir Kárahnjúkasvæðið frá Ísafirði 1. október næstkomandi ef nægur áhugi er til að fylla flugvél sem færi frá Ísafirði. Greint er svo frá á fréttavef Bæjarins besta. Beint flug ásamt hálftíma flugi yfir svæðið mun kosta tuttugu þúsund krónur á manninn og geta áhugasamir skráð sig á lista í versluninni Hamraborg. Flogið verður með Fokker flugvél eða nýrri Dash flugvél Flugfélags Íslands.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×