Óvíst hvort skipulögð amfetamínframleiðsla fari fram á Íslandi 14. febrúar 2006 22:13 Ásgeir Karlsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar í Reykjavík MYND/Vilhelm
Tveir menn eru í haldi lögreglunnar, grunaðir um að tengjast framleiðslu á amfetamíni. Mennirnir, sem báðir eru Litháar, hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til sautjánda febrúar. Annar mannanna var handtekinn á Keflavíkurflugvelli við komu til landsins þann fjórða febrúar síðastliðinn. Í farangri hans fundust tvær áfengisflöskur sem innihéldu torkennilegan vökva. Daginn eftir var maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald til sautjánda þessa mánaðar. Að sögn Ásgeirs Karlssonar, yfirmanns fíkniefnadeildar lögreglunnar í Reykjavík, hefur rannsókn á vökvanum leitt í ljós að um er að ræða amfetamín á lokastigi framleiðslu. Í gær var svo hinn maðurinn handtekinn í tengslum við málið og var hann úrskurðaður í gæsluvarðhald í dag, einnig til sautjánda febrúar. Báðir mennirnir eru frá Litháen og eru þeir á fertugs- og fimmtugsaldri. Sá sem handtekinn var í gær hefur verið búsettur hér á landi í nokkur ár en að sögn Ásgeirs hefur hann ekki komið við sögu hjá fíkniefnadeildinni áður. Aðspurður segir Ásgeir ekki hægt að álykta í ljósi þessa máls að skipulögð amfetamínframleiðsla fari fram hér á landi, þó vissulega sé óyggjandi að menn fikti við slíkt. Spurður hvort talið sé að fleiri tengist málinu segist Ásgeir ekkert geta sagt til um það á þessu stigi málsins.
Fréttir Innlent Mest lesið Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Erlent Telur sig hafa orðið vitni að aðdraganda drápsins Innlent Tveir menn fjárkúguðu ungan dreng Innlent Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Innlent Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Innlent Hlýnar um helgina Veður Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Erlent Aðilar „einfaldlega ekki tilbúnir að teygja sig nógu langt“ Innlent Bandaríkjamenn refsa sendifulltrúa SÞ í málefnum Palestínumanna Erlent Pilturinn er fundinn Innlent Fleiri fréttir Jökulhlaup úr Mýrdalsjökli í Leirá Syðri og Skálm enn í gangi Telur sig hafa orðið vitni að aðdraganda drápsins Borgarbúar frekar hlynntir kílómetragjaldi en landsbyggðin Aðilar „einfaldlega ekki tilbúnir að teygja sig nógu langt“ Tveir menn fjárkúguðu ungan dreng Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Pilturinn er fundinn „Skýr vísbending um að gera þurfi betur í málefnum erlendra barna“ Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Sjá meira